Kári mætir í uppáhalds íþróttahúsið sitt í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. nóvember 2015 16:30 Kári Jónsson. Vísir/Stefán
Kári Jónsson og félagar í Haukum heimsækja ÍR í sjöttu umferð Domino´s deildar karla í kvöld en leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Kári, sem er aðeins 18 ára gamall, er á sínu þriðja tímabili í úrvalsdeildinni og tveir bestu leikir hans hafa einmitt verið á móti ÍR í Seljaskólanum. Kári skoraði 26 stig á rúmum 18 mínútum í sigri á ÍR í Seljaskólanum 24. október 2013 en hann var þá aðeins að spila sinn þriðja úrvalsdeildarleik á ferlinum. Kári hitti úr öllum sex þriggja stiga skotum sínum í leiknum og alls fóru 10 af 11 skotum hans rétta leið. Haukar unnu með 21 stigi þann tíma sem hann var inná vellinum. Rúmu ári síðar var Kári aftur í stuði í sigurleik Hauka í Seljaskólanum. Kári skoraði þá 25 stig í eins stigs sigri. Kári hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum sínum í leiknum og alls úr 9 af 14 skotum sínum utan af velli. Þessir tveir leikir Kára í Seljaskólanum eru enn tveir stigahæstu leikir Kára í úrvalsdeildinni en það er líka athyglisvert að fimm stigahæstu leikir Kára í Domino´s deildinni hafa allir verið á útivelli. Kári hefur skorað 25,5 stig að meðaltali í tveimur leikjum sínum í Seljaskóla og sett niður 10 af 13 þriggja stiga skotum sínum í þessum tveimur leikjum sem er mögnuð skotnýting. Það er líka hægt að velta því fyrir sér hvort að það tengist því eitthvað að faðir hans, Jón Arnar Ingvarsson, þjálfaði ÍR-liðið á fimm tímabilum en Kári var níu ára þegar faðir hans tók fyrst við þjálfun ÍR-liðsins. Nú er að sjá hvort Kári detti enn á ný í stuð í Seljaskólanum í kvöld þegar Haukar mæta ÍR-ingum í beinni á Stöð 2 Sport.Flest stig Kára Jónssonar í einum leik í úrvalsdeild karla:26 - á móti ÍR í Seljaskóla 24. október 201325 - á móti ÍR í Seljaskóla 4. desember 2014 23 - á móti Tindastól á Sauðárkróki 8. mars 2015 20 - á móti Snæfelli í Stykkishólmi 30. október 2014 19 - á móti Skallagrími í Borgarnesi 29. janúar 2015 18 - á móti Njarðvík í Njarðvík 26. febrúar 2015 18 - á móti Keflavík á Ásvöllum 12. mars 2015 18 - á móti KR á Ásvöllum 23. október 2015
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira