Facebook er að prufukeyra skilaboð sem eyðast sjálfkrafa innan klukkutíma eftir sendingu. Skilaboðin væru þá svipuð Snapchat, sem er einn helsti keppinautur Facebook.
Facebook reyndi að kaupa Snapchat árið 2013 en tókst það ekki. Í kjölfarið hefur það þróað skilaboð sem hægt verður að senda í gegnum hefðbundna Messenger smáforritið, en eyðast eftir klukkutíma. Franskir Facebook notendur verða fyrstir til að prófa þennan möguleika, sem verður væntanlega innleiddur í fleiri löndum seinna.
Fyrirtækið skilaði nýverið mesta hagnaði sínum hingað til og virðist allt vera á uppleið hjá Zuckerberg og félögum.
Facebook innleiðir skilaboð í anda Snapchat

Tengdar fréttir

Einn og hálfur milljarður notar Facebook í hverjum mánuði
Hægt er að deila tónlist frá Spotify og iTunes á Facebook.

Facebook hætti að fylgjast með fólki sem ekki er skráð
Dómstóll í Belgíu hafa gefið fyrirtækinu 48 tíma til að verða við ákvörðun sinni.