Ungverjar slógu út Norðmenn og eru á leið á EM 15. nóvember 2015 21:30 Ungverjar fagna marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Ungverjaland er á leið á Evrópumótið í Frakklandi næsta sumar eftir að liðið vann Noreg í báðum leikjum liðanna um laust sæti á mótinu. Þeir unnu síðari leik liðanna í kvöld, 2-1. Ungverjaland vann fyrri leikinn 0-1 í Noregi með marki Laslo Kleinheisler og voru í afar góðri stöðu fyrir leikinn í kvöld sem spilaður var í Búdapest. Fyrra mark leiksins kom á fjórtándu mínútu og það gerði Tamas Piskin með laglegu skoti framhjá Ørjan Nyland í marki Noregs. Noregur gerði tvöfalda breytingu í hálfleik þar sem meðal annars Martin Ødegaard, leikmanni Real Madrid, var skipt af velli í hléi. Norðmönnum gekk illa að skora í síðari hálfleik og Ungverjaland bætti við öðru marki á 83. mínútu. Þar var sjálfsmark eftir hornspyrnu, en Markus Henriksen varð fyrir því óláni að setja boltann í stöngina og inn á sínu eigin marki. Markus Henriksen var ekki hættur en hann skoraði annað mark sitt, en nú í rétt mark, mínútu fyrir leikslok. Nær komust Norðmenn ekki og lokatölur 2-1 sigur Ungverja og samanlagt 3-1. Unverjaland verður því ásamt Íslandi og fleiri liðum á Evrópumótinu í Frakklandi næsta sumar.
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Nýliði tryggði Ungverjum sigur í Olsó Baráttan um síðustu fjögur sætin á EM í Frakklandi hefst í kvöld. 12. nóvember 2015 21:45 Mest lesið „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Handbolti Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Handbolti Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum Fótbolti Guardiola allur útklóraður eftir leik Fótbolti Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Enski boltinn „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Fótbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn Fótbolti Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Enski boltinn Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Körfubolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung „Gefur enga mynd af því sem við erum að fara að ganga í gegnum“ Amma Bellinghams fór ekki út úr húsi á meðan EM stóð Svarar Gabriel eftir að hann stal fagninu hans Guardiola allur útklóraður eftir leik Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Sjá meira
Nýliði tryggði Ungverjum sigur í Olsó Baráttan um síðustu fjögur sætin á EM í Frakklandi hefst í kvöld. 12. nóvember 2015 21:45