Það kostar lið um 26 milljónir dollara eða um 3 milljarða og 360 milljónir íslenskra króna að kaupa vélar fyrir eitt tímabil. Þessi kostnaður var töluvert lægri fyrir 2014, þegar vélarnar voru einfaldari.
Tillaga var lögð fram um verðþak, öll lið samþykktu tillöguna, nema Ferrari. Ferrari er elsta liðið í Formúlu 1 og hefur sem slíkt neitunarvald á allar breytingar og ákvað að beita því í þessu tilfelli. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá FIA.
„Með hagsmuni heimsmeistaramótsins hefur FIA ákveðið að leita ekki réttar síns gegn Ferrari,“ segir einnig í yfirlýsingunni.

Í kjölfar andstöðu Ferrari hefur FIA skyndilega lýst yfir stuðningi við hugmynd Bernie Ecclestone sem snýst um að kynna til sögunnar ódýrari vél frá sjálfstæðum aðila.
Vélin yrði líklega í kringum 2,2 lítra V6 með tveimur forþjöppum og einföldu rafaflskerfi.
Ecclestone hefur nýlega sagt að slík vél yrði aflmeiri en núverandi vélar, þær nýju þyrftu hins vegar meira eldsneyti og bílarnir yrðu því þyngri og í heildina yrði þá um mjög sambærilegan hraða að ræða.
Verðið á 2,2 lítra vélunum yrði töluvert lægra en á núverandi vélarpakka. Það myndi gera liðum kleift að verja fjármunum sínum í annað en vélar, til dæmis þróun bíls sem gæti gert keppnina jafnari.