Lífið

Svona á að dúa lög

Stefán Árni Pálsson skrifar
Friðrik Dór fór á kostum.
Friðrik Dór fór á kostum. vísir
Skemmtiþátturinn Spilakvöld með Pétri Jóhanni Sigfússyni eru á dagskrá Stöðvar 2 öll laugardagskvöld.

Fyrir rúmlega viku kepptu þau Friðrik Dór, Bryndís Ásmundsdóttir, Steiney Skúladóttir ásamt liðstjóra gegn þeim Jóni Gnarr, Ósk Gunnarsdóttur, Jóni Jósefi Snæbjörnssyni og liðstjóra.

Hér að neðan má sjá atriði úr þeim þætti en um var að ræða dagskrálið sem nefnist Hvað segir Dú? Þá mega keppendur aðeins Dúa lög og liðfélagar eiga að giska á rétt lag.

Spilakvöld er glænýr skemmtiþáttur byggður á fyrirmyndinni Hollywood Game Night sem hefur slegið í gegn undanfarin ár í Bandaríkjunum og hefur Jane Lynch stjórnandi þáttanna hlotið tvenn Emmy verðlaun fyrir þættina.

Í þáttunum keppa tvö lið með þremur frægur einstaklingum og einum óþekktum liðsstjóra hvort. Liðin safna stigum í fjölmörgum mismunandi leikjum og það lið sem stendur uppi með fleiri stig eftir fjóra leiki kemst í bónus umferð þar sem liðsstjórinn getur unnið peningaverðlaun.


Tengdar fréttir

Það sprakk allt í Spilakvöldi

Skemmtiþátturinn Spilakvöld með Pétri Jóhanni Sigfússyni eru á dagskrá Stöðvar 2 öll laugardagskvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.