Pallettan sem allir hafa beðið eftir Ritstjórn skrifar 26. október 2015 13:30
Förðunarmeistarinn og Youtube stjarnan Lisa Eldridge var ráðin sem listrænn stjórnandi Lancôme í upphafi árs. Síðan þá hafa aðdáendur hennar beðið spenntir eftir fyrstu vörunni hannaðri af Lisu. Núna hefur ráðning hennar borið ávöxt, en fyrsta augnskuggapallettan hönnuð af henni hefur litið dagsins ljós. Pallettan hlaut nafnið Auda (city) in Paris og inniheldur sextán liti, bæði matta og með metallic áferð. PallettanLitirnir eru allir litir sem hægt er að nota og líkir vinsælum litum sem margar konur geta ekki verið án. Í pallettunni eru tólf litir í röð og fyrir framan þá eru litir sem ætlaðir eru til að nota til að ramma inn augun. Alla augnskuggana er hægt að nota bæði blauta og þurra sem er mikill kostur og þannig færðu helmingi meira fyrir peninginn.Lisa EldridgePallettan er hönnuð til þess að geta á einfaldan hátt breytt dagförðun í kvöldförðun. útgáfudagur pallettunnar er 28. október og nú er bara að krossa putta og vona að Ísland verði eitt af löndunum sem fá pallettuna.
Glamour Fegurð Mest lesið Passa sig Glamour Best klæddu stjörnurnar á MTV EMA hátíðinni Glamour Vogue segir brjóstaskoruna vera úr sögunni Glamour Pallíetturnar eru heitar um jólin Glamour Lena Dunham og America Ferrera gerðu grín að Trump Glamour Kanye kemur til móts við skipuleggjendur tískuvikunnar í New York Glamour Kalda frumsýnir haustherferðina innan um íslenska náttúru Glamour Emma Watson valin kona ársins Glamour Kendall blæs á sögusagnir um lýtaaðgerðir Glamour Rauðir skór og síðir kjólar stóðu uppúr hjá Ganni Glamour