Meistararnir með fullt hús stiga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. september 2015 21:44 Grótta er handhafi allra stærstu titlanna á Íslandi. vísir/stefán
Grótta er með fullt hús stiga í Olís-deild kvenna en Íslands- og bikarmeistararnir unnu átta marka sigur, 20-12, á FH í kvöld. Seltirningar hafa unnið alla þrjá leiki sína en í þeim hefur liðið aðeins fengið á sig 48 mörk, eða 16 mörk að meðaltali í leik. Grótta leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 11-6, og FH-ingum gekk engu betur að ráða við vörn Seltirninga í seinni hálfleik. Grótta bætti jafnt og þétt við forskotið og vann að lokum átta marka sigur, 20-12. Unnur Ómarsdóttir var markahæst í liði Gróttu í kvöld með fjögur mörk en Arndís María Erlingsdóttir, Laufey Ásta Guðmundsdóttir og Sunna María Einarsdóttir komu næstar með þrjú mörk hver. Elín Anna Baldursdóttir og Ingibjörg Pálmadóttir skoruðu báðar fjögur mörk fyrir FH en restin af liðinu skoraði aðeins fjögur mörk samtals. FH er með eitt stig í 11. sæti deildarinnar. Þriðja umferðin í Olís-deild kvenna klárast á morgun með fimm leikjum.Mörk Gróttu:Unnur Ómarsdóttir 4, Arndís María Erlingsdóttir 3, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 3, Sunna María Einarsdóttir 3, Lovísa Thompson 2, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 2, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Anna Katrín Stefánsdóttir 1.Mörk FH: Elín Anna Baldursdóttir 4, Ingibjörg Pálmadóttir 4, Sigrún Jóhannsdóttir 2, Hildur Marín Andrésdóttir 1, Jóhanna Helga Jensdóttir 1.
Olís-deild kvenna Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 23-14 | Stjarnan burstaði Val Stjarnan vann auðveldan sigur á Val í Olís-deild kvenna í kvöld, 23-14, en staðan í hálfleik var 15-8, Stjörnuni í vil. Florentina Stanciu var mögnuð í markinu og margar lögðu hönd á plóg í sóknarleiknum. 25. september 2015 20:00 Mest lesið Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Enski boltinn Í beinni: Chelsea - Fulham | Ná heimamenn að pressa á Liverpool? Enski boltinn „Ég elska NFL deildina en jóladagur er okkar“ Körfubolti Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Fótbolti Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Fótbolti Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti Sport 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Fleiri fréttir Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 23-14 | Stjarnan burstaði Val Stjarnan vann auðveldan sigur á Val í Olís-deild kvenna í kvöld, 23-14, en staðan í hálfleik var 15-8, Stjörnuni í vil. Florentina Stanciu var mögnuð í markinu og margar lögðu hönd á plóg í sóknarleiknum. 25. september 2015 20:00