Harmageddon

Nýtt myndband með Leoncie og Shades of Reykjavík

Frosti Logason skrifar
Elli Grill og Leoncie í góðum fíling í nýja myndbandinu.
Elli Grill og Leoncie í góðum fíling í nýja myndbandinu. vísir
Eitt umtalaðasta tónlistarmyndband landsins um þessar mundir var frumsýnt á skemmtistaðnum Loftinu í kvöld. Það var hljómsveitin Shades of Reykjavík sem tefldi þar fram nýjustu smáskífu sinni sem unnin er í samvinnu við enga aðra en hina ástsælu stórstjörnu Leoncie, einnig þekkt sem indverska prinsessan.

Góð stemmning var á Loftinu og ætlaði allt um koll að keyra þegar sýningu myndbandsins lauk en það þykir einstaklega vel heppnað og glæsilegt. Myndbandið er við endurgerð lagsins Enginn Þríkantur hér sem Leoncie sló sjálf í gegn með fyrir nokkrum árum.

Shades Of Reykjavík hafa átt talsvert við lagið og þykir samstarf þeirra og Leoncie hafa lukkast vonum framar.

Vonandi verður áframhald á samstarfi þessara miklu listamanna en myndbandið við snilldina má sjá hér að neðan.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.