Nú er komið heilt ár síðan einhver annar en Mercedes ökumaur náði ráspól. Felipe Massa á Williams var síðastur til þess í Austurríki í fyrra. Mercedes hefur þá náð 19 ráspólum í röð.
Tímatakan fór rólega af stað enda brautin að mestu blaut eftir mikla rigningu í morgun. Margir ökumenn biðu aðeins með að yfirgefa bílskúra sína.
Örtröð myndaðist um miðja fyrstu lotu, og Felipe Nasr á Sauber var fyrsti maðurinn til að prófa þurr dekk. Aðrir fylgdu svo í kjölfarið.
Brautin þornaði eftir því sem á leið og því var mikilvægt fyrir ökumenn að reyna að komast síðastir yfir línuna.
Kimi Raikkonen endaði í 18. sæti í fyrstu lotu en mun færast upp um fjögur sæti þegar aðrir taka út refsingar. Sergio Perez á Force India, Jenson Button á Mclaren og Manor ökumennirnir Roberto Merhi og Will Stevens duttu líka út.

Fernando Alonso á McLaren, Daniel Ricciardo á Red Bull, Carlos Sainz á Toro Rosso, Pastor Maldonado á Lotus og Marcus Ericsson á Sauber duttu út í annarri lotu.
Eftir fyrstu tilraun í þriðju lotu var Hamilton fljótastur, Rosberg annar og Vettel þriðji.
Hamilton gerði mistök í fyrstu beygjunni á síðasta hringnum. Rosberg eygði möguleika á að stela ráspól en síðasta beygjan reyndist honum erfið. Staðan á toppnum var því óbreytt frá fyrstu tilraun síðustu lotu.