Frábærar fréttir fyrir Njarðvík | Bonneau áfram í Ljónagryfjunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júní 2015 10:04 Stefan Bonneau. Vísir/Valli
Stefan Bonneau, hinn magnaði leikmaður Njarðvíkinga í Dominos-deildinni í körfubolta, mun spila áfram með liðinu á næstu leiktíð en hann hefur skrifað undir nýjan samning. Þetta kemur fram á karfan.is. Stefan Bonneau kom til Njarðvíkinga um áramótin og var með 34,0 stig og 5,2 stoðsendingar að meðaltali í deild og úrslitakeppni. Stefan Bonneau skoraði 52 stig í síðasta leiknum þar sem Njarðvíkingar töpuðu í tvíframlengdum oddaleik í undanúrslitum á móti verðandi Íslandsmeisturum í KR. „Við erum himinlifandi með niðurstöðuna enda Stefan stórkostlegur leikmaður. Stefan er einnig frábær liðsmaður innan vallar sem utan, hefur góð áhrif á liðsfélaga sína og gerir þá alla að betri leikmönnum, " sagði Gunnar Örlygsson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur í samtali við Karfan.is. Það bjuggust flestir við því að Stefan Bonneau færi í sterkari deild enda eiginlega alltof góður fyrir Dominos-deildina en Njarðvíkingar hafa örugglega látið alla þjálfara hinn liðanna í deildinni svitna aðeins við þessar fréttir. Stefan Bonneau er líka sannkallað tilþrifatröll og það má því áfram búast við mikilli skemmtun þegar menn mæta á leiki Njarðvíkurliðsins sem var eitt allra besta lið deildarinnar eftir að Bonneau kom til félagsins. Hér fyrir neðan má sjá nokkur af tilþrifum Stefan Bonneau frá því í úrslitakeppninni.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira