Heilsa

Bráðhollur og trefjaríkur morgunverður

Rikka skrifar

Að þessu sinni fjallar Tobba um mikilvægi trefja í mataræðinu

Trefjar eru kolvetni sem líkaminn getur ekki melt og er þeim skipt í tvo meginflokka - leysanleg og óleysanleg.

Leysanlegu trefjarnar leysast upp í vatni og verða hlaupkennd og geta lækkað blóðsykur og kólesteról í blóðinu, þarf vatnsleysanlegu bæta meltinguna. Meltingin skiptir höfuðmáli þegar kemur að góðri heilsu og skitpir máli að halda meltingarveginum hreinum svo að þarmarnir nái að frásoga næringarefni úr fæðunni.

Meðalmanneskja þarf um 20-30 grömm af trefjum á dag og samkvæmt rannsóknum þá vantar okkur íslendingum örlítið upp á til að ná því meðaltali. Við getum til dæmis byrjað á því að fá okkur svona dásamlegan morgunmat.

Hollur morgunverður

2 msk hörfræ

2 msk chia fræ

1 lífræn hrein jógúrt

½ tsk vanilla

½ tsk kanill

2 msk gojiber

Leggið fræin í bleyti yfir nótt. Setið allt saman og njótið.


Tengdar fréttir

Hollt og sykurlaust gos

Tobba kennir okkur að búa til hollt og sykurlaust gos á mjög einfaldan máta.

Ljomandi með Þorbjörgu - Glúten

Glútenofnæmi (celiac disease) er sjúkdómur sem framkallar ofnæmisviðbrögð í líkamanum og getur smám saman valdið eyðingu í meltingafærum sé glútens neytt en getur gengið tilbaka sé því hætt.

Ljómandi með Þorbjörgu - Fita

Ljómandi með Þorbjörgu eru nýir örþættir á Heilsuvísi þar sem fjallað verður um heilsuna og hvernig þú getur bætt hana með einföldum og góðum ráðum úr fórum Þorbjargar eða Tobbu. Í fyrsta þættinum fræðir hún okkur um lífsnauðsynlega fitu og hvernig við getum nýtt hana til þess að halda okkur í góðu formi og til þess að halda uppi jafnri orku allan daginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.