Rosberg: Lewis ók fáránlega hægt Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 12. apríl 2015 08:25 Lewis Hamilton tókst að vinna og ná sálfræðilegu forskoti á liðsfélaga sinn í dag. Vísir/Getty
Hver sagði hvað eftir keppnina í Kína. Lewis Hamilton vann. Þetta var keppni liðsfélaga enda vann Mercedes og Ferrari var þar rétt á eftir og svo kom Williams. „Ég hugsaði bara um að halda bilinu á milli mín og Nico (Rosberg) svo vildi ég spara dekkinn og nota þau á réttum tíma. Það var ekki eins gaman að klára keppnina undir öryggisbílnum,“ sagði Hamilton. „Það er ekki gaman að vera annar en við gerðum þetta rétt í dag. Við erum ánægðir með bilið í Ferrari,“ sagði Rosberg. Hann bætti svo við „Lewis ók fáránlega hægt og óþarflega hægt.“ Hamilton svaraði svo fyrir sig og sagði „það er ekki mitt hlutverk að passa upp á Nico og hans keppni. Ég var að spara dekkin og passa upp á mig.“ „Ég er spenntur að heyra hvað Nico hefur að segja á fundinum á eftir,“ bætti Hamilton við. „Það er staðreynd að keppnin mín varð fyrir skaða vegna þess hvernig Lewis ók. Lewis hugsaði um sinn hag en ekki liðsins í heild. Hann ók fáránlega hægt og þá lenti ég í vandræðum með Sebastian. Ég hefði ekkert grætt á að reyna að komast fram úr. Ég hefði bara skemmt dekkin. Hvort hann gerði þetta viljandi eða ekki ég veit það ekki. Það þarf að ræða þetta og það verður gert núna,“ sagði Rosberg afar uppstökkur. Sálfræðistríðið virðist byrja snemma í ár. „Það er gott að komast á verðlaunapall. Vonandi getum við minnkað bilið í Mercedes. En við erum búin að ná í þrjá verðlaunapalla af þremur svo það er nokkuð gott,“ sagði Sebastian Vettel á verðlaunapallinum. „Án öryggisbílsins hefði ég hugsanlega getað reynt að taka fram úr Sebastian. En liðið náði öllu sem hægt var í dag. Við munum ná Mercedes, við erum ánægð með hvar við enduðum í dag,“ sagði Kimi Raikkonen sem ræsti sjötti en endaði fjórði. „Ég lofaði engum að vinna í dag. Mercedes átti skilið að vinna. Kimi átti mun besta daginn á tímabilinu í dag,“ sagði Maurizio Arrivabene, keppnisstjóri Ferrari. „Auðvitað er gaman að keppa að einhverju og taka fram úr. Minn uppáhalds fram úr akstur var þegar ég tók fram úr Ericsson. Þetta var gaman á meðan var,“ sagði Max Verstappen um keppnina, hann átti afbragðs dag þangað til vélin sprakk.
Formúla Tengdar fréttir Hamilton hraðastur í dag Lewis Hamilton var hraðastur á báðum æfingum dagsins fyrir kínverska kappaksturinn sem fram fer á Sjanghæ brautinni um helgina. 10. apríl 2015 17:45 Mercedes: Malasía mun ekki endurtaka sig Mercedes liðið býst ekki við því að Malasíukappaksturinn endurtaki sig í Kína um komandi helgi. Þar vann Sebastian Vettel á Ferrari. 6. apríl 2015 23:00 Hamilton á ráspól í Kína Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji. 11. apríl 2015 07:46 Hægt að ná Mercedes án reglubreytinga Vélaframleiðandinn Renault er sannfærður um að hann geti náð Mercedes án einhverskonar jafnræðisreglu. 9. apríl 2015 06:30 Rosberg: Vettel getur hjálpað mér að verða meistari Nico Rosberg trúir því að Sebastian Vettel geti átt stóran þátt í að aðstoða hann í að vinna heimsmeistaratitil ökumanna með því að ræna stigum af Lewis Hamilton. 9. apríl 2015 23:00 Lewis Hamilton kóngurinn í Kína Lewis Hamilton var afar sannfærandi í Mercedes bílnum í dag og það virtist enginn geta ógnað honum af neinni alvöru. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji. 12. apríl 2015 07:40 Vettel: Það kom á óvart hversu fljótir Mercedes voru í dag Hver sagði hvað eftir tímatökuna í Kína? Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í fimmta skipti. 11. apríl 2015 08:34 Mest lesið „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Fótbolti Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Fótbolti Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Íslenski boltinn Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Fótbolti Ármann yngir upp um þrjátíu ár Körfubolti Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fótbolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira
Hamilton hraðastur í dag Lewis Hamilton var hraðastur á báðum æfingum dagsins fyrir kínverska kappaksturinn sem fram fer á Sjanghæ brautinni um helgina. 10. apríl 2015 17:45
Mercedes: Malasía mun ekki endurtaka sig Mercedes liðið býst ekki við því að Malasíukappaksturinn endurtaki sig í Kína um komandi helgi. Þar vann Sebastian Vettel á Ferrari. 6. apríl 2015 23:00
Hamilton á ráspól í Kína Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji. 11. apríl 2015 07:46
Hægt að ná Mercedes án reglubreytinga Vélaframleiðandinn Renault er sannfærður um að hann geti náð Mercedes án einhverskonar jafnræðisreglu. 9. apríl 2015 06:30
Rosberg: Vettel getur hjálpað mér að verða meistari Nico Rosberg trúir því að Sebastian Vettel geti átt stóran þátt í að aðstoða hann í að vinna heimsmeistaratitil ökumanna með því að ræna stigum af Lewis Hamilton. 9. apríl 2015 23:00
Lewis Hamilton kóngurinn í Kína Lewis Hamilton var afar sannfærandi í Mercedes bílnum í dag og það virtist enginn geta ógnað honum af neinni alvöru. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji. 12. apríl 2015 07:40
Vettel: Það kom á óvart hversu fljótir Mercedes voru í dag Hver sagði hvað eftir tímatökuna í Kína? Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól í fimmta skipti. 11. apríl 2015 08:34