Af hverju var Rosberg pirraður? Hvað varð um Ferrari og hver var maður keppninnar?
Allt þetta og fleira í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Rosberg reiddist liðsfélaga sínum hjá Mercedes. Hann taldi Hamilton hafa hægt óðelilega mikið á sér. Rosberg kvartaði yfir því að hann væri þvingaður til að verjast Sebastian Vettel. Því hann komst ekki fram úr Hamilton því það hefði slitið dekkjunum of hratt.
Hamilton svaraði fyrir sig á blaðamannafundi eftir keppnina og sagði „Ég er ekki hérna til að passa upp á að Nico gangi vel,“ sem er alveg rétt.
Hamilton var að spara dekkin til að nýta þau þegar hann þurfti á þeim að halda. Rosberg var allt annað en kátur. Sálfræðihernaðurinn er því hafinn aftur. Allt er orðið eins og það á að vera í Formúlu 1. Sá sem tapar verður pirraður.

Nei er einfalda svarið en í rauninni átti Ferrari ekki svar við Mercedes. Dekkjaslitið virtist meira hjá þeim rauðu en á silfur örvunum.
Það varð ljóst strax í tímatökunni í hvað stefndi. Ferrari hélt ekki í við Mercedes. Það er þó ljós við enda ganganna. Meiri hiti hjálpar Ferrari og þrátt fyrir óvenju hlýjan dag í Kína á sunnudaginn var samt kalt, ef miðað er við flestar keppnir.
Kimi Raikkonen segist sannfærður um að Ferrari verði heimsmeistari bílasmiða í ár.
„Við höfum náð miklum framförum í ár og munum halda því áfram. Augljóslega eru allir að vinna að bætingum, svo það veltur á öðrum líka en við erum að gera réttu hlutina,“ sagði Finninn sem varð fjórði í Kína.

Max Verstappen á þann heiður í þetta skipti. Martin Brundle, fyrrum Formúlu 1 ökumaður lýsti akstri Verstappen um helgina best. Hann sagði aksturstilþrif Verstappen minna á Ayrton Senna og Michael Schumacher. Þeir sem þekkja til vita að hrósið verður ekki stærra.
Þrátt fyrir að hafa ekki lokið keppni þá átti Hollendingurinn ungi ótrúlega keppni. Hann tók fram úr talsvert mörgum reyndari ökumönnum. Vélarbilun kom í veg fyrir að hann lyki keppni. Vonarstjarna framtíðarinnar að byrja að skína í þessum 17 ára strák.

Niki Lauda þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og yfirmaður hjá Mercedes sagði eftir keppnina að ökumenn ættu að hugsa um sjálfan sig.
„Ökumenn eiga að vera sjálfselskir,“ hann lét fylgja orð sem ekki hæfir að hafa eftir. Hann fann ekkert að akstri Hamilton.
Mercedes liðið hafði óskað eftir því við Rosberg fyrir keppnina að hann sýndi meiri grimmd. En hann fór eiginlega bara í fýlu. Hann hlýtur að hafa misskilið beiðnina aðeins.

Manor liðinu tókst að koma báðum bílunum í mark. Þetta er í fyrsta skipti í þremur tilraunum sem það tekst.
Fernando Alonso á McLaren var hringaður af báðum ökumönnum Ferrari, liðsins sem hann ók fyrir áður en hann fór til McLaren. Raikkonen hafði gaman að því að hringa Alonso. Raikkonen var snöggur í talstöðina og sagði „komið þessum McLaren frá,“ í léttum gír.
Pastor Maldonado á Lotus tókst ekki að klára. Hann hefur ekki lokið keppni á tímabilinu. Hann virðist hafa skotmark á bakinu því hann hefur verið saklaust fórnarlamb í mistökum annarra í ár. Hann var samt búinn að skemma fyrir sjálfum sér með því að hitta ekki almennilega á akreinina inn á þjónustusvæðið og snúast á brautinni. Hann átti almennt ekki góðan dag.