Aðeins fjórði erlendi þjálfarinn sem kemur liði í lokaúrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2015 15:30 Israel Martin fagnar hér sætinu í lokaúrslitunum. Vísir/Stefán
Israel Martin, spænski þjálfarinn hjá Tindastól, kom sínum mönnum í gær í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn þegar liðið sló Hauka út úr undanúrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta. Tindastóll vann einvígið 3-1 og hefur þar með unnið 6 af 7 leikjum sínum í úrslitakeppninni í ár en Stólarnir eru nýliðar í deildinni. Israel Martin varð aðeins fjórði erlendi þjálfarinn sem kemur liði í lokaúrslit í þriggja áratuga sögu úrslitakeppni úrvalsdeildar karla. Bandaríkjamaðurinn Jon West var sá fyrsti en undir hans stjórn fóru Valsmenn í lokaúrslitin árið 1987 eftir að hafa slegið Keflavík út í undanúrslitunum. Ungverjinn Laszlo Nemeth kom KR í lokaúrslitin tvö ár í röð, 1989 og 1990, en seinna árið varð KR-liðið Íslandsmeistari. Bandaríkjamaðurinn Geof Kotila var síðastur á undan Israel Martin til að fara með lið í úrslitin en undir hans stjórn komust Snæfellingar í lokaúrslitin 2008 þar sem liðið tapaði fyrir Keflavík.Erlendir þjálfarar sem hafa komið liðum í lokaúrslitin:Israel Martin, Tindastóll 2015 Mæta KR eða NjarðvíkGeof Kotila, Snæfell 2008 2. sæti, 0-3 tap fyrir KeflavíkLaszlo Nemeth, KR 1990 Íslandsmeistari, 3-0 sigur á KeflavíkLaszlo Nemeth, KR 1989 2. sæti, 1-2 tap fyrir KeflavíkJon West, Valur 1987 2. sæti, 0-2 tap fyrir Njarðvík
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira