Barcelona náði sjö stiga forskoti | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2015 19:54 Luis Suárez skoraði tvö mörk í leiknum Vísir/AFP
Barcelona er komið með sjö stiga forskot á toppi spænsku deildarinnar í fótbolta eftir 4-0 heimasigur á Almería í kvöld. Lionel Messi og Luis Suárez voru báðir á skotskónum í kvöld en Messi skoraði þó bara eitt og er því enn þremur mörkum á eftir Cristiano Ronaldo í baráttunni um markakóngstitilinn. Luis Suárez skoraði aftur á móti tvö mörk í leiknum og hefur þar með skorað tíu deildarmörk á tímabilinu. Barcelona er komið með 74 stig eftir 30 leiki en Real Madrid, sem á leiki inni á móti Rayo Vallecano seinna í kvöld er með 67 stig. Lionel Messi skoraði fyrsta markið á 33. mínútu með skoti utan úr vítateig og þannig var staðan þar til í seinni hálfleik. Luis Suárez bætti við öðru marki á 55. mínútu með svipuðu marki eftir að hafa fengið boltann frá Dani Alves út á kanti. Marc Bartra skallaði síðan inn hornspyrnu Xavi á 75. mínútu og þannig urðu lokatölur leiksins. Luis Suárez bætti við sínu öðru marki í uppbótartíma leiksins þegar hann skoraði eftir óeigingjarna sendingu frá Pedro.Lionel Messi kemur Barcelona í 1-0 á móti Almería. Luis Suárez kemur Barcelona í 2-0 á móti Almería. Marc Bartra kemur Barcelona í 3-0 á móti Almería. Luis Suárez kemur Barcelona í 4-0 á móti Almería.
Spænski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Víkingar með bakið upp við vegg Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Náði að plata Óskar Örn Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Sjá meira