Fótbolti

Freyr búinn að velja Hollands-hópinn

Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson. vísir/valli
Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins, valdi í dag landsliðshópinn sem mun spila gegn Hollandi í byrjun næsta mánaðar.

Um vináttulandsleik er að ræða og fer leikurinn fram í Kórnum þann 4. apríl næstkomandi.

Þetta verður í áttunda skiptið sem þjóðirnar eigast við hjá en Ísland hefur fimm sinnum farið með sigur af hólmi í viðureignunum hingað til, einu sinni hefur orðið jafntefli og einu sinni hefur Holland haft betur.  

Þjóðirnar munu svo leika vináttulandsleik í Hollandi á næsta ári.

Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eru leikjahæstu leikmenn hópsins en þær hafa báðar leikið 97 landsleiki.

Síðast léku þjóðirnar í úrslitakeppni EM í Svíþjóð árið 2013 og þá hafði Ísland betur, 1–0, með marki Dagnýjar Brynjarsdóttur.  Þjóðirnar hafa einu sinni áður mæst í Kórnum, árið 2009, í vináttulandsleik.  Honum lyktaði með jafntefli, 1 – 1.

Holland undirbýr sig nú af kappi fyrir úrslitakeppni HM í Kanada sem hefst 6. júní en þar leika þær í riðli með Kína, Nýja Sjálandi og heimastúlkum.  

Holland mun svo verða gestgjafi úrslitakeppni EM 2017 en dregið verður í riðla undankeppninnar þann 13. apríl næstkomandi og verður Ísland þar í efsta styrkleikaflokki.  

Holland situr nú í 11. sæti á styrkleikalista FIFA kvenna, fór upp um fjögur sæti á milli lista, en nýr listi verður birtur 27. mars.

Holland tók þátt á Kýpurmótinu sem fram fór á sama tíma og Ísland lék á Algarve mótinu.  Þar hafnaði liðið í 8. sæti, gerðu jafntefli við Finnland og England en töpuðu gegn Ástralíu og Skotlandi.  Hollenska liðið heldur héðan til Noregs þar sem þær leika vináttulandsleik 8. apríl.

Hópurinn:

Markverðir:

Guðbjörg Gunnarsdóttir, Lilleström

Sandra Sigurðardóttur, Stjarnan

Aðrir leikmenn:

Anna Björk Kristjánsdóttir, Stjarnan

Anna María Baldursdóttir, Stjarnan

Arna Sif Ásgrímsdóttir, Kopparsberg/Göteborg

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, Stjarnan

Dagný Brynjarsdóttir, FC Bayern

Fanndís Friðriksdóttir, Breiðablik

Glódís Perla Viggósdóttir, Eskilstuna

Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfoss

Guðný Björk Óðinsdóttir, Kristianstads

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Stabæk

Hallbera Guðný Gísladóttir, Breiðablik

Harpa Þorsteinsdóttir, Stjarnan

Hólmfríður Magnúsdóttir, Avaldsnes

Margrét Lára Viðarsdóttir, Kristianstads

Rakel Hönnudóttir, Breiðablik

Sara Björk Gunnarsdóttir, FC Rosengård




Fleiri fréttir

Sjá meira


×