Verður Pettis risastjarna eftir bardagann í kvöld? Pétur Marinó Jónsson skrifar 14. mars 2015 06:00 Anthony Pettis. Vísir/Getty
Anthony Pettis er ríkjandi léttvigtarmeistari UFC. Hann mætir Rafael dos Anjos um beltið á UFC 185 í kvöld en takist Pettis að ná sannfærandi sigri gæti hann komist á stall með stærstu stjörnum íþróttarinnar.Jon Jones, Ronda Rousey, Conor McGregor, Anderson Silva og Georges St. Pierre hafa verið stærstu stjörnur UFC undanfarin ár. Þegar þessar stjörnur berjast beinast allra augu að þeim sem sést best á áhorfstölum ásamt auknum tekjum þeirra og UFC. Aðrir bardagamenn komast ekki á sama stall og fyrrnefndar stjörnur ef litið er til áhorfs en Anthony Pettis gæti komist skrefinu nær að komast í þann hóp í kvöld. Anthony Pettis hefur allt til að verða risastjarna í íþróttinni. Bardagarnir hans eru spennandi þar sem hann tekur upp á ótrúlegustu hlutum í búrinu eins og sjá má á t.d. „Showtime“ sparkinu hans svo kallaða (sjá hér). Einnig klárar hann yfirleitt bardaga sína en hann hefur klárað 15 af 18 bardögum sínum með annað hvort rothöggum eða glæsilegum uppgjafartökum Það má einnig taka það fram að hann er með áhugaverða sögu á bakvið sig. Faðir hans var myrtur þegar hann var 16 ára gamall og þurfti Pettis að sjá fyrir fjölskyldunni upp frá því. Í gegnum þrautseigju og seiglu hefur hann komist alla leið á toppinn í íþróttnni og það með stæl. Hann virðist líka vera góður drengur en eftir verðlaunaféð sem hann fékk fyrir að sigra sinn síðasta bardaga keypti hann hús og bíl handa móður sinni. Allt þetta gerir Pettis að mjög áhugaverðum bardagamanni en frammistaða hans í búrinu skiptir þó öllu máli. Það sem hefur haldið aftur af honum hingað til eru meiðsli. Síðan hann kom í UFC sem WEC meistarinn (minni bardagasamtök sem UFC keypti) árið 2011 hefur hann aðeins barist sex bardaga í UFC. Tíð meiðsli hafa haldið honum frá búrinu auk þess sem upptökur á The Ultimate Fighter raunveruleikaþættinum töfðu fyrir en þar var Pettis þjálfari. Pettis segir að meiðslin séu á bak og burt og ætlar hann sér að berjast þrisvar á þessu ári - að minnsta kosti. Hann kláraði Gilbert Melendez í desember í fyrra og mætir nú Rafael dos Anjos í kvöld. Klári hann dos Anjos sannfærandi gæti hann orðið þessi risastjarna líkt og Rousey og Jones eru. Auk Pettis verður nóg um að vera í kvöld. Carla Esparza mun verja strávigtartitil sinn í fyrsta sinn þegar hún mætir hinni pólsku Joanna Jedrzejczyk. Þá mun Johny Hendricks berjast í fyrsta sinn síðan hann tapaði veltivigtarbeltinu í fyrra og mætir hann Matt Brown í frábærum veltivigtarslag. Rotarinn með stóru bumbuna, Roy Nelson, mætir hollenska sparkboxmeistaranum Alistair Overeem og er ólíklegt að sá bardagi fari út fyrir fyrstu lotu. Bardagakvöldið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 og hefst útsendingin kl 2 aðfaranótt sunnudags.
MMA Tengdar fréttir Rosalegt rothögg hjá Nelson | Myndband Einn áhugaverðasti kappinn í UFC, Roy "Big Country" Nelson, bauð upp á flugeldasýningu í Abu Dhabi í kvöld. 11. apríl 2014 20:57 Roy Nelson - rotarinn með stóru bumbuna Föstudaginn 11. apríl etja þeir Roy Nelson og Antonio "Big Nog" Nogueira kappi á UFC viðburði í Dubai. Bardaginn er aðalbardagi kvöldsins og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þegar hugsað er um hinn fullkomna íþróttamann er Roy Nelson sennilega síðastur til að koma upp í hugann. 3. apríl 2014 12:15 UFC 181: Hvað gerir Pettis gegn Melendez? UFC 181 fer fram annað kvöld og eru tveir titilbardagar á dagskrá. Anthony Pettis og Johny Hendricks munu báðir verja belti sitt í fyrsta sinn en bardagakvöldið hefst kl 3 aðfaranótt sunnudags á Stöð 2 Sport. 5. desember 2014 22:45 Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira
Rosalegt rothögg hjá Nelson | Myndband Einn áhugaverðasti kappinn í UFC, Roy "Big Country" Nelson, bauð upp á flugeldasýningu í Abu Dhabi í kvöld. 11. apríl 2014 20:57
Roy Nelson - rotarinn með stóru bumbuna Föstudaginn 11. apríl etja þeir Roy Nelson og Antonio "Big Nog" Nogueira kappi á UFC viðburði í Dubai. Bardaginn er aðalbardagi kvöldsins og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þegar hugsað er um hinn fullkomna íþróttamann er Roy Nelson sennilega síðastur til að koma upp í hugann. 3. apríl 2014 12:15
UFC 181: Hvað gerir Pettis gegn Melendez? UFC 181 fer fram annað kvöld og eru tveir titilbardagar á dagskrá. Anthony Pettis og Johny Hendricks munu báðir verja belti sitt í fyrsta sinn en bardagakvöldið hefst kl 3 aðfaranótt sunnudags á Stöð 2 Sport. 5. desember 2014 22:45