Bonneau: Þetta verður góð sería Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2015 17:00 Stefan Bonneau og Logi Gunnarsson. Vísir/Stefán
Stefan Bonneau, leikstjórnandi Njarðvíkinga, var valinn besti leikmaður seinni hluta Domionos-deildar karla og í kvöld spilar hann sinn fyrsta leik í úrslitakeppni á Íslandi. „Ég er mjög þakklátur fyrir að fá þessi verðlaun og vil þakka þjálfurum og leikmönnum Njarðvíkur fyrir að koma mér í þá stöðu að geta unnið þessi verðlaun," sagði Stefan Bonneau í viðtali við Arnar Björnsson á kynningarfundi fyrir úrslitakeppnina sem fram fór í vikunni. „Sumt kom mér á óvart í íslenska körfuboltanum og annað ekki. Fyrsti leikurinn minn var á móti KR, besta liðinu í deildinni, og það kom mér svolítið á óvart. En heilt yfir tókst mér að spila minn leik og skila góðu starfi," sagði Bonneau. „Við spiluðum vel á móti Stjörnunni í deildinni á dögunum en nú mætum við þeim aftur í úrslitakeppninni og það verður allt öðruvísi. Ég veit að þeir munu reyna að breyta til hjá sér og við þurfum að gera slíkt hið sama. Þetta verður góð sería," sagði Bonneau sem skoraði 41 stig, tók 8 fráköst og gaf 9 stoðsendingar í leiknum á móti Stjörnunni. „Auðvitað er gaman að skora en við verðum bara að sjá til hversu mörg stig ég næ að skora í seríunni á móti Stjörnunni," sagði Stefan Bonneau en það má sjá allt viðtal Arnars Björnssonar við hann hér fyrir neðan.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira