Nú stendur tónlistarhátíðin By: Larm yfir í Noregi en á hátíðinni má sjá margar afar spennandi hljómsveitir og listamenn og hafa Íslendingar átt fjölmarga fulltrúa þar síðustu ár og að þessu sinni er hljómsveitin Vök á meðal þeirra sem koma fram á By: Larm.
En hljómsveitin Vök kom einmitt fram á Nordic Playlist Radio Bar í gær og þar frumfluttu þau nýtt lag sem kallast If I Was. Lagið er tekið af væntanlegri EP plötu frá hljómsveitinni sem þau hafa unnið að ásamt Bigga Veiru í GusGus síðustu misseri.

En áhugasamir geta fylgst með streymi frá Nordic Playlist Radio Barhér.
Hér að neðan má svo sjá frumflutning Vök á laginu If I Was, en lagið verður sett í spilun þann 16. mars næstkomandi og má því segja að um einskonar frumflutning sé að ræða fyrir lesendur Vísis.