Ég er að fá það sigga dögg skrifar 26. febrúar 2015 09:00 Hefur þú tekið selfie þegar ert að fá það? Vísir/Skjáskot
Fyrir alls ekki svo löngu síðan komst það í fréttirnar að nýtt trend tröllriði öllu en það voru ljósmyndir af pörum eftir kynlíf með merkinu #aftersex. Pörin á myndunum eru gjarnan mjög afslöppuð og oft glottandi út í annað. Öllu áhugaverðara hefði verið að vita hvernig þau væru þegar þau fengju fullnægingu. Enn er ákveðin dulúð í kringum fryggðarsvip einstaklinga þegar það fær fullnægingu og hafa margar stórmyndir ýkt svipinn eða leikið sér myndarlega með hann. Nú hefur vefsíðan Beautiful Agony létt hulunni af þessari ráðgátu en þar má nálgast myndbönd og ljósmyndir af fólki þegar það fær fullnægingu í sjálfsfróun. Engin kynfæri eru sýnd í myndböndunum, aðeins andlit fólksins þegar það gamnar sér og fær það. Þetta byrjaði sem lítið verkefni en hefur stækkað og er núna töluvert vinsæl vefsíða sem margir nýta sér, bæði til að deila myndum af sér en einnig til að skoða myndir af öðrum.Vísir/SkjáskotEf þú hefur áhuga á að deila með umheiminum þínum svip og þinni upplifun þá að sjálfsögðu getur þú það. Þú getur sent inn þitt eigið myndband og færð greitt fyrir það tvö hundruð bandaríkjadali auk aðgangs að vefsíðunni í heilan mánuð.
Heilsa Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Fleiri fréttir Tíu mínútna leiðin til að koma skipulagi á heimilið Sjá meira