
Þegar niðurstöður rannsókna á hvað skiptir máli í svefni barna er skoðað er því mikilvægt að skoða hvernig rannsóknin var framkvæmd.
Það eru bæði til taugafræðilegar, sögulegar og heilsufarslegar ástæður fyrir því að ung börn þurfi að sofa nálægt foreldrum sínum. Það að setja börn í eigin svefnherbergi til hvílu er vestrænt fyrirbæri sem er frekar nýlegt.
Í Japan er algengt að börn sofi uppí án aukinnar hættu fyrir börnin er það talið renna stoðum undir það að það er ekki hætta við að börnin sofi uppí heldur hvernig sé staðið að því.

- Mátulegur hiti í herberginu (16-18 gráður)
- Dýnan sé ekki of mjúk (eykur líkur á að barn velti upp að foreldri)
- barn hafi eigin sæng og noti ekki kodda
- Barnið sofi á bakinu.
- Barnið sofi aldrei eitt í foreldrarúmi
- Engin laus bönd eða annað sé nálægt barni sem geti hert að hálsi (dæmi keðjur í snudduböndum) Móðir hafi sítt hár uppbundið.
- Möguleiki að barn liggi milli foreldra í sér einingu með köntum (fæst víða á netinu). Þetta má ekki vera úr plasti heldur verður að vera úr taui sem andar.
- Hægt er að hafa barnið í rimlarúmi sem er fest upp við rúm foreldra og þá er grindin tekin frá. Hafa í huga að rúmin séu vel fest saman.
Hvenær barn ætti ekki að deila rúmi með foreldrum sínum?
Sérstaklega er varhugavert og börn ættu ekki að deila rúmi með þeim sem:
- Reykja.
- Hafa notað áfengi eða önnur vímuefni.
- Nota lyf sem að valda syfju og slæva dómgreind.
- Hafa einhvern sjúkdóm eða ástand sem að skerðir getu þess til að sinna barninu.
- Eru mjög þreyttir og yfirkeyrðir og eiga erfitt með að vakna til barns.
- Ef að foreldri/foreldrar eru í mikilli ofþyngd (hætta á að barn velti upp að)
- Ekki er ráðlagt að fyrirburar eða léttburar sofi í rúmi foreldra sinna fyrstu vikurnar.
- Ekki er heldur ráðlagt að barn deili rúmi með foreldrum sínum ef að eldri systkini eða gæludýr eru í sama rúmi. (þó ef að eldra barn er í rúminu er hægt að hafa börnin sitt hvoru megin við sig)
Svefnstaðir sem eru ekki öruggir eru:
- svefn barns í sófa með eða án foreldris,
- barn sofandi í fangi foreldris í stól.
- barn sofandi á grjónapúða
- barn sofandi í ömmustól uppi á borði eða á mjúkum undirfleti s.s. rúmi (getur oltið)
- barn sofi á mjög mjúku undirlagi s.s. vatnsrúmi eða mjög mjúkri dýnu eða með kodda