Lífið

Ensk útgáfa af lagi Maríu eftir að Áttan skilaði henni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Nökkvi, María og Egill
Nökkvi, María og Egill mynd/áttan
Það ætti ekki að hafa farið framhjá nokkrum manni að drengirnir í Áttunni rændu Eurovision þátttakandanum Maríu Ólafsdóttur. Um tíma var óvissa með þátttöku hennar á úrslitakvöldinu á morgun.

Fólk þarf ekki að óttast lengur enda hefur Instagram síða @attan_official nú náð ríflega 3.000 fylgjendum og Maríu verið skilað aftur. Það virtist fara nokkuð vel á með þeim Nökkva, Maríu og Agli eftir að þeir leystu hana úr haldi.

María virðist hafa haft hröð handtök því nú er búið að snara lagi hennar yfir á ensku og verður það flutt í þeim búningi annað kvöld. Þá útgáfu má heyra hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.