Heilsa

Ertu með hita?

sigga dögg skrifar
Wishbone mælirinn
Wishbone mælirinn Vísir/Skjáskot
Allskyns hitamælar eru til.

Suma þarf að stinga í endaþarm, aðrir fara í munn eða inní eyra og enn aðrir eru lagðir við enni.

Fólk takmarkar gjarnan notkun hitamælsins við veikindi en nú er komin mælir sem hægt er að nota við að mæla hækkaðan líkamshita tengdum veikindum en einnig hitastig mjólkur (til dæmis í pela) og baðvatn og í raun hvað sem er sem þig vantar að vita hitastigið á.

Mælirinn heitir Óskabeinið (Wishbone) og er stungið í snjallsímann þar sem hitinn er mældur nákvæmlega og þú getur haldið skrá utan um þróun hitans, eitthvað sem getur verið mjög mikilvægt þegar barn er veikt og hiti þess sveiflukenndur.

Varan er ekki komin á markað en hægt er að panta hana af Kickstarter.

Hér má sjá myndband af mælinum sniðuga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×