Lífið

Gefa út plötu með kattahljóðum í stað hljóðfæra

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
EL-P og Killer Mike munu leika hér á landi í sumar.
EL-P og Killer Mike munu leika hér á landi í sumar. vísir/getty
Bandaríska hip hop sveitin, og verðandi Íslandsvinurinn, Run the Jewels átti vafalaust eina allra bestu plötu ársins 2014 en það var skífan Run the Jewels 2. Aðdáendur sveitarinnar bíða nú sveittir á efri vörinni eftir því að þeir EL-P og Killer Mike sendi frá sér plötuna Meow the Jewels sem er platan endurhljóðblönduð með kattahljóðum í stað hljóðfæra.

 
oh my god what am I doing with my life. #MeowTheJewels

A video posted by thereallyrealelp (@thereallyrealelp) on Jan 23, 2015 at 5:57pm PST



Run the Jewels 2 kom út í október í fyrra en dúóið bauð fólki upp á forpanta plötuna og enn fremur upp á alls konar misgáfulega pakka í leiðinni.

Fyrir litla 7.500 dollara (tæpa milljón króna) færðu plötuna í fjórum vínyl eintökum, árituð plaköt, boli, eintak af öllum varningi sem hljómsveitin selur og að auki færðu tíu miða á tónleika með bandinu að eigin vali. Þú mátt koma með gest en hann fær ekki að hanga baksviðs fyrir og eftir tónleikana. Það stendur þér hins vegar til boða. 

350.000 dollarar (rúmar 46 milljónir) þýða að rappararnir munu þykjast hafa áhuga á því sem þú hefur áhuga á í hálft ár. Þeir munu mæta á fundi sem þú velur, semja lag til styrktar málstaðnum og búa til heimildarmynd. Tilboðið stendur hins vegar ekki lögreglu- og/eða hryðjuverkamönnum til boða.



Eitt tilboðið hljóðaði upp á 40.000 dollara (rúmar fimm milljónir) en fyrir það fé ætlaði EL-P að endurhljóðblanda plötuna með kattahljóðum í stað hljóðfæra. Aðdáandi sveitarinnar tók sig til og byrjaði með hópsöfnun á vefsíðunni Kickstarter og náði markinu.

Undirbúningur við plötuna er þegar hafinn en EL-P er byrjaður að klippa saman nokkur lög og má heyra byrjunina á upphafslaginu Jeopardy hér að ofan. Einnig heimsóttu þeir dýraathvarf til að finna réttu kettina í verkið en upptöku af því má sjá hér fyrir neðan.



Run the Jewels er meðal þeirra sveita sem mun koma fram á All Tomorrow Parties hátíðinni í sem fram fer á Ásbrú 2.-4. júlí næstkomandi. Meðal annara erlendra atriða má nefna Belle and Sebastian og Deafheaven.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.