Philip Selway, trommari Radiohead, hefur nú tjáð sig um upptökur sveitarinnar vegna næstu breiðskífu þeirra og að sögn trommarans ganga upptökurnar vel. Sagði hann þá hafa unnið að plötunni allt haustið og til jóla en séu núna að taka sér smá hlé til að sinna öðrum verkefnum. Selway sagði jafnframt að þeir hefja upptökur á ný í næsta mánuði. Hann segir að þrátt fyrir að upptökurnar hafi gengið vel eigi þeir mikið verk fyrir höndum og platan sé langt frá því að vera tilbúin. Þó er ljóst að enn er möguleiki á að Radiohead aðdáendur fái að heyra eitthvað nýtt frá hljómsveitinni í lok árs.
Noel Gallagher heldur áfram að koma sér í fréttirnar en hann var spurður í viðtali við NME hvort að hann myndi mæta á tónleika Ed Sheeran á Wembley leikvanginum eftir að Sheeran bauðst til að gefa honum miða. Noel sagði að hann myndi nú ekki sjálfur mæta en dóttir hans fengi miðana og myndi því eflaust skála í kampavíni með James Blunt, sem Noel Gallagher hefur einnig móðgað nýlega. Noel hélt svo áfram og sagði að á sama tíma yrði hann eflaust staddur í Azerbajan að spila fyrir miklu færri áhorfendur fyrir helmingi minni pening en með miklu meiri fyrirhöfn og þurfa svo að vakna daginn eftir og lesa um Ed Sheeran tónleikana og átta sig á að hann sé ekki alveg jafnmikil goðsögn og hann var áður fyrr.

Breska rokksveitni Enter Shikari mætti í hljóðver BBC Radio 1 á dögunum og spiluðu fyrir hlustendur en á meðal þeirra laga sem hljómsveitin tók var ábreiða þeirra af þemalagi hinna vinsælu sjónvarpsþátta Game of Thrones. En útgáfa þeirra þótti heppnast vel og hefur verið vel tekið á netinu. En hljómsveitin Enter Shikari stendur í ströngu þessa daganna að kynna sína nýjustu plötu sem heitir The Mindsweep og hefur sú plata hlotið nokkuð góða dóma. Hægt er að hlusta á flutning Enter Shikari á Game of Thrones laginu hér að neðan.