Niki Lauda vill sjá þúsund hestafla formúlu eitt bíla

Lauda telur núverandi bíla, sem eru um 750 hestöfl vera of auðvelda í akstri. Niðurstaða fundar vélaframleiðenda fyrr á árinu var sú að óska eftir að fá að nota meira eldsneyti. Vélaframleiðendurnir telja að með auknu eldsneytisflæði mætti koma núverandi vélum yfir 1000 hestafla múrinn.
„Það er hætta á að við töpum sífellt fleiri aðdáendum vegna þess að F1 verði óaðlaðandi,“ segir Lauda sem vann sinn þriðja heimsmeistaratitil í hinum gríðarlega öfluga McLaren-TAG Porsche árið 1984. (Sem sjá má á mynd.)
„Þetta ættu auðvitað að vera 1200 hestöfl, ásamt breiðari dekkjum og loftflæði hjálp, aflið á að koma fljótt inn þannig að það þurfi að vanda aksturinn gríðarlega,“ bætti Lauda við.
Hann vill halda í rafkerfin en auka aflið og styður hugmynd vélaframleiðanda um að stækka eldsneytistankinn og auka flæðið.
„Núverandi F1 bílar eru þannig að flestir Gp2 og F3 ökumenn geta náð hinum reynslumeiri ökumönnum á ansi stuttum tíma án þess að þurfa að taka mikla áhættu,“ sagði fyrru heimsmeistarinn.
„Fyrir einhverjum tíma síðan voru ungir ökumenn virkilega áhyggjufullir yfir hraðanum, bremsunum, niðurtoginu og að lenda í óhappi á 300 km/klst. Í dag er hægt að aka F1 bíl eins og venjulegum götubíl. Ég get það, þú getur það,“ sagði Lauda að lokum.
Tengdar fréttir

20 Formúlu 1 keppnir 2015
Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Raikkonen ætlar ekki að aðlaga sig að bílnum
Kimi Raikkonen segist ekki ætla að breyta akstursstíl sínum til að henta bílnum. Hann vill að Ferrari hanni bíl sem hentar akstursstíl hans.

Marchionne býst við Ferrari í fremstu röð undir lok tímabilsins
Forseti Ferrari Sergio Merchionne segi að lokakeppnir ársins verði spennandi fyrir liðið. Hann telur að þá komi í ljósútkoma endurreisnar liðsins.

Pirelli er tilbúið að breikka dekkin
Hugmyndir eru uppi um að gera afturdekkin á Formúlu 1 bílum breiðari. Pirelli segist vera reiðubúið að framleiða breiðari dekk.

Honda má eftir allt þróa sína vél
Aðrir vélaframleiðendur höfðu fengið leyfi til að þróa sína vél á komandi tímabili. Nú má Honda taka þátt í þróunarstríðinu.

Ég er ekki töframaður
Nýr liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segist ekki geta gert nein kraftaverk fyrir næsta tímabil og því verði það líklega erfitt fyrir ítalska liðið.