Róbert: Kannski óþægilegra fyrir hann að mæta okkur en öfugt
„Það er svolítið síðan ég spilaði þarna en ég var í þrjú ár þarna og á góðar minningar frá Danmörku og leið mjög vel þar. Það er alltaf gaman að spila á móti þeim og svo spila ég með einum þeirra í Parísarliðinu og ég þekki leikmennina ágætlega“.
„Við getum unnið alla og við getum líka tapað fyrir öllum. Við höfum sýnt þjóðinni það nokkuð skýrt í þessu móti,“ sagði Róbert.
Hvernig er munurinn á tilfinningunum eftir Tékkaleikinn og sigurleikinn gegn Egyptum í gærkvöldi?
„Þetta er þvílík tilfinninga rússibanaferð. Menn fara langt niður en á svona stuttu móti þarftu að vera snöggur upp og byrja að „mótivera“ sjálfan þig og strákana í kringum þig.
„Þegar þú ert í liði þýðir ekkert að hugsa bara um sjálfan sig. Þegar vel gengur kemur þetta bara eins og einhver alda sem ýtir þér á brettinu áfram. Þetta eru tveir ólíkir pólar“.
Nú mætið þið Gumma Gumm. Hvernig er að eiga við gamla þjálfarann?
„Það er mjög skemmtilegt. Það er alltaf gaman að mæta gömlum félögum hvað þá gömlum þjálfara. Guðmundur er með lið í höndunum sem búið er að spá heimsmeistaratitli og þá hljóta þeir að vera sigurstranglegri.
Ég held að hann sé stressaður fyrir þennan leik og kannski óþægilegra fyrir hann að mæta okkur en fyrir okkur að mæta honum. Það hefur alltaf verið gaman að spila á móti Danmörku þarna liggja bræðrabönd. Þetta hafa yfirleitt verið skemmtilegir leikir ef við undanskiljum einn eða tvo og allt getur gerst.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Tengdar fréttir

Guðmundur gaf ekki kost á viðtölum | Reiknar með Aroni
Svaraði aðeins spurningum á blaðamannafundi danska liðsins í Doha í morgun.

Kristján Ara í HM-kvöldi: Besti leikur Björgvins Páls
Guðjón Guðmundsson og Kristján Arason voru gestir Harðar Magnússonar í HM-kvöldi þar sem þeir fóru yfir sigur Íslands á Egyptalandi á HM í Katar í gær.

Verður Gunnar Steinn leynivopn Íslands gegn Guðmundi?
Gunnar Steinn Jónsson sá eini í landsliðshópi Íslands sem ekki spilaði undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar.

Dagur: Feginn að sleppa við sirkusinn
„Gott að sleppa við Ísland til að forðast einmitt þessar spurningar.“

Vignir: Gaman að sjá Gumma öskra á hina
Vignir Svavarsson segir að sigur Íslands á Danmörku í æfingamóti hafi ekkert að segja í dag.

Guðjón Valur: Enginn óskar sér þess að líta út eins og fábjáni
Landsliðsfyrirliðinn um kennitöluflakk íslenska landsliðsins, eigin frammistöðu á mótinu og leikinn gegn Egyptlandi í gær.

Sverre: Gummi er örugglega haugstressaður
Sverre Jakobsson segir að íslenska liðið eiga góða möguleika gegn Dönum á morgun.

Gajić markahæstur á HM eftir riðlakeppnina | Austurríki á tvo á topp 10
Dragan Gajić, hægri hornamaður slóvenska handboltalandsliðsins, er markahæsti leikmaður HM í Katar eftir riðlakeppnina sem lauk í gær.

Ásgeir Örn: Ennþá sætara að vinna þá ef maður þekkir þá
Ásgeir Örn Hallgrímsson er einn margra leikmanna sem þekkir vel til í danska landsliðinu.

Óvíst með þátttöku Björgvins gegn Dönum
Óvíst er með þátttöku Björgvins Páls Gústavssonar í leiknum gegn Danmörku í 16-liða úrslitunum á HM í Katar á morgun.

Gaupi í HM-kvöldi: Aroni ber skylda til að spila með gegn Dönum
Íslenska landsliðið í handbolta tryggði sér sem kunnugt er sæti í 16-liða úrslitum á HM í Katar með sigri á Egyptum í gær.

Ekkert ákveðið með Aron fyrr en á morgun
Óvíst um þátttöku skyttunnar Arons Pálmarssonar gegn Danmörku á morgun.

Nöddesbo: Guðjón Valur er einn sá besti
Línumaðurinn sterki í danska liðinu spilar með Guðjóni hjá Barcelona og hann hlakkar til leiksins á morgun.

Það er von með Aron - ekki útilokað að hann spili gegn Dönum
Stórskyttu íslenska landsliðsins líður mun betur og gæti verið með í leiknum gegn Dönum á morgun.

Guðjón Valur markahæstur í íslenska liðinu eftir riðlakeppnina | Vignir oftast út af
Íslenska landsliðið í handbolta tryggði sér sem kunnugt er sæti í 16-liða úrslitum með þriggja marka sigri, 28-25, á Egyptalandi í gær.

Lasse Svan: Alltaf hörkuleikir þegar Íslendingar og Danir mætast
Hornamaður danska landsliðsins segir að úrslitin á morgun ráðist á smáatriðunum.