Dagur: Héldum stemningunni niðri Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Katar skrifar 26. janúar 2015 17:18
Dagur Sigurðsson var vitanlega hæstánægður með frammistöðu sinna manna eftir sigur Þýskalands á Egyptalandi í kvöld. Þýskaland er komið áfram í 8-liða úrslit HM í handbolta eftir öruggan sigur Þýskalands á Egyptalandi, 23-16, í Lusail höllinni í Doha í kvöld. Þjóðverjar höfðu mikla yfirburði í leiknum þökk sé frábærum varnarleik og stórkostlegri frammistöðu Carsten Lichtlein í markinu. „Þetta var mjög gott og ég var sérstaklega ánægður með byrjunina, yfirvegunina, varnarleikinn og markvörsluna næstum allan leikinn,“ sagði Dagur í viðtali við Arnar Björnsson eftir leikinn í kvöld. „Við náðum að halda þeim í skefjum allan leikinn og hleyptum stemningunni ekki upp. Það var mjög mikilvægt og maður heyrði það í lokin hvernig Egyptarnir geta verið þegar þeir komast inn í leikinn.“ Dagur segir að hann hafi hvílt lykilmenn sína þegar Þjóðverjar voru búnir að ná miklu forskoti í leiknum og hann lofaði Carsten Lichtlein í markinu. „Það er ekki amalegt að fá svona markvörslu í svona mikilvægum leik. Það tekur pressuna af sóknarleiknum. Bara frábært.“ Allt viðtal Arrnars Björnssonar við Dag eftir sigurinn í dag má finna hér fyrir ofan.
HM 2015 í Katar Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira