Það versta í tækni 2014: Þú tapaðir 14. desember 2014 09:00 Tölvurefir af öllum toga komust yfir gögn tugmilljóna einstaklinga um allan heim.
Í nýsköpun eru mistökin mörg. Hin vísindalega aðferð krefst mistaka og sem slík eru þau göfug. Það þýðir ekki að við getum ekki skemmt okkur yfir þessum mistökum. Hérna eru stærstu flopp ársins í tækniheiminum.Hlutabréfaverð í Twitter féll um tæp 85 prósent.10. Hlutabréf Twitter Verð hlutabréfa Twitter féll um tæp 85% á þessu ári. Hjá venjulegu fyrirtæki væri þetta dauðadómur en ekki í heimi samfélagsmiðla. Notendafjöldi er dýrmætari gjaldeyrir en tekjur. Því miður hefur fjölgun notenda staðið í stað hjá Twitter. Horfurnar? Sé mið tekið af sögunni eru þær jákvæðar. Facebook gekk brösulega á hlutabréfamarkaði í upphafi en er í hæstu hæðum í dag. Hver veit?9. Snjallúrið 2014 átti að vera ár snjallúrsins. Nokkrar athyglisverðar frumgerðir litu dagsins ljós á síðasta ári – Samsung, LG og Sony kynntu formlega snjallúr til leiks og fyrirtækin héldu áfram að dæla út snjallúrum sem enginn virtist hafa áhuga á. Risarnir hafa ekki náð sér á strik og sprotinn Pebble með úrið Steel er enn vinsælastur. Mögulega getur Apple bjargað þessu með Apple Watch á næsta ári en það er lítið tilefni til bjartsýni.8. Microsoft Kinect Þetta hefur verið erfitt ár hjá Microsoft. Stjórnendaskipti og hræðileg byrjun á leikjatölvu-stríðinu við Sony. Hinn uppfærði Kinect-skynjari átti upphaflega að fylgja með Xbox One-leikjatölvunni og dró með sér 12.000 kr. verðmiða. Kinect, sem í raun er stórkostleg græja, var nauðsynlegur fylgihlutur Xbox 360-leikjatölvunnar. Árið 2014 varð ljóst að enginn vildi auga Microsoft í stofunni hjá sér.Nadella sagði á árinu að konur ættu ekki að sækjast eftir launahækkunum, þetta sagði hann á ráðstefnu kvenna í tölvuiðnaðinum (ekki djók).7. iOS 8.0.1 Þetta var erfitt ár hjá Apple. Nýtt stýrikerfi iPhone beinlínis drap símana og þeir sem þustu á iTunes til að fá meina sinna bót fengu í staðinn uppfærslu sem gerði illt verra. Apple fór í neyðarham og dró uppfærsluna til baka. Birti aðra og allt féll í ljúfa löð. Fyrirtækið gerði lítið úr vandamálinu, þetta hafði víst bara áhrif á 40 þúsund manns.6. Tilraunastarfsemi Facebook Fyrir utan sálfræðilegar tilraunir á notendum sínum þá reyndi Facebook fyrir sér í smáforritum. Fyrirtækið kynnti þrjú öpp til leiks, Rooms, Paper og Slingshot. Ekkert af þessum smáforritum hefur notið vinsælda (Paper er reyndar ansi myndarlegt app). Í hinu stóra samhengi eru forritin smávægileg fjárfesting fyrir Facebook. Mögulega eru þau vitnisburður um listrænt og hugmyndafræðilegt gjaldþrot samfélagsmiðlarisans.5. „Svona tölum við ekki“ með framkvæmdastjóra Microsoft Satya Nadella, nýr framkvæmdastjóri Microsoft, hefur gert margt gott fyrir fyrirtækið. Markmið hans er að vinna gegn stöðnun Microsoft. Til að ná því markmiði er mikilvægt að sleppa því að tala niður til kvenna. Nadella sagði á árinu að konur ættu ekki að sækjast eftir launahækkunum, þetta sagði hann á ráðstefnu kvenna í tölvuiðnaðinum (ekki djók). Frekar ættu þær að treysta á kerfið til að sjá um þær (kerfi sem mismunar konum). Nadella ítrekaði síðar að honum hefði skjátlast.Snjallsími Amazon kostaði álíka mikið og iPhone og var í alla staði frekar lélegt raftæki.4 Amazon brennur Netverslunarrisinn kynnti loks snjallsíma til leiks. Hann kostaði álíka mikið og iPhone og var í alla staði frekar lélegt raftæki. Hann stóð sig þó þokkalega vel í að vera framlenging á vefverslun Amazon. Flestir eru sammála um að Amazon hafi ekki gert nóg í að undirstrika eiginleika símans. Stjórnarformaðurinn Jeff Bezos, verandi Jeff Bezos, er staðráðinn í að selja Amazon Fire-snjallsímann. „Fylgist með,“ sagði hann á dögunum.3 Candy Crush Sænski tölvuleikjarisinn King, sem á heiðurinn af Candy Crush, átti hræðilegt ár. Fyrir utan það að reyna að fá einkaleyfi á orðinu Candy þá var hlutafjárútboð fyrirtækisins hörmung. Bréfin voru upphaflega seld á verðinu 22,50$ á opnunardegi og stóðu í 19$ í lok dags. Sem sagt, allir töpuðu (verðið er í kringum 17$ í dag). Eins og með Twitter og Facebook þá segir fyrsti dagur á markaði ekki alla söguna.2 iCloud Tekjur af sölu iPhone halda áfram að heilla en Apple þurfti engu að síður að takast á við erfið vandamál. Öryggismál iCloud vekja sérstaka athygli. Nektarmyndir af Jennifer Lawrence, Kate Upton og fleirum láku úr skýinu. Apple var harðlega gagnrýnt fyrir öryggismál en fyrirtækið sagði friðhelgi notenda örugga. Á endanum voru skilmálar og stillingar efld.1 Gögnin þín Þú áttir erfitt ár í netheimum. Þú kynntist ormum, vírusum og þjófum á borð við Regin, Heartbleed og Shellshock. Tölvurefir af öllum toga komust yfir gögn tugmilljóna einstaklinga um allan heim. Brotist var inn hjá fjölmörgum fyrirtækjum þar sem netvarnir voru af skornum skammti JP Morgan, Home Depot, Snapchat og nú síðast Sony. Það versta við þetta allt er að við neytendur berum sökina. Við framseljum persónuupplýsingar viljug, oft til fyrirtækja sem gæti ekki verið meira sama um netöryggi (lesist: Snapchat).
Fréttir ársins 2014 Sony-hakkið Mest lesið Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Lífið Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lífið Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Lífið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Lífið Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið Lífið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Lífið Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Lífið Fagurkeri selur miðbæjarperlu Lífið Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Skúli hannaði hof fyrir Grímu Fann nýjan tilgang í kjölfar lömunar í kraftlyftingum Eyðir afmælisdegi dótturinnar í fasteignadeilur Eini dagurinn sem hægt er að fara upp í Gróttuvita Krakkatía vikunnar: Menning, bangsar og líffæri Veggjadans á Hörpu og snyrtivörur úr sælgæti Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Sjá meira