Íris Ólöf í Ketilhúsi 20. október 2014 15:00 Íris Ólöf Sigurjónsdóttir fjallar um tilurð sýningarinnar Myndlist minjar / Minjar myndlist. Vísir/Auðunn
Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins Hvols á Dalvík, heldur á morgun klukkan 17 fyrirlestur í Ketilhúsinu á Akureyri undir yfirskriftinni Hugmynd verður sýning. Þar fjallar hún um sýninguna Myndlist minjar / Minjar myndlist sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri, en Íris Ólöf er sýningarstjóri sýningarinnar. Fyrir utan almenn safnastörf fæst hún við hönnun á eigin textílum og hefur hannað allar sýningar Byggðasafnsins Hvols auk þess að setja upp sýningar í öðrum rýmum. Á sýningunni Myndlist minjar / Minjar myndlist gefur annars vegar að líta muni markaða af sögu, menningu og andblæ liðins tíma og hins vegar ný listaverk unnin af ellefu listamönnum á aldrinum 28 til 70 ára sem boðið var að vinna þau út frá munum Byggðasafnsins. Enginn aðgangseyrir er að fyrirlestrinum sem er sá fjórði í röð fyrirlestra sem haldnir eru í Ketilhúsinu á hverjum þriðjudegi klukkan 17 undir yfirskriftinni Þriðjudagsfyrirlestrar.
Menning Mest lesið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Lífið Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Lífið samstarf Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Lífið Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Lífið Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Lífið Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Lífið samstarf Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Tónlist Útför Megasar Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira