Lífið

Hera og Jed spila á Iceland Airwaves

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Þau Jed og Hera kynntust fyrir tveimur árum og hafa verið að semja saman og spila síðan þá.
Þau Jed og Hera kynntust fyrir tveimur árum og hafa verið að semja saman og spila síðan þá.
„Við hlökkum mikið til að koma til Íslands, þetta verður í fyrsta skipti sem Jed kemur og ég hef ekki komið heim í þrjú ár. Við erum mjög spennt,“ segir söngkonan Hera Hjartardóttir.

Hera kemur til landsins í byrjun nóvember en hún er búsett á Nýja-Sjálandi. Með henni í för verður vinur hennar og samstarfsmaður, Jed Parsons. Þau Jed ætla að spila á Airwaves og í kjölfarið fara í tónleikaferðalag um landið.

Þau Hera og Jed kynntust fyrir rúmum tveimur árum og hafa unnið mikið saman síðan þá. „Hann var trommari í rokkhljómsveit sem ég var að túra með. Þeir spiluðu undir hjá mér og svo líka sem eigið band, House of Mountain.

Við höfðum smá tíma baksviðs fyrir tónleika eitt kvöldið og þá sömdum við Jed lag saman. Það var lagið Issues sem hefur notið mikilla vinsælda hérna úti,“ segir Hera. Þau Jed gerðu myndband við lagið sem var síðan meðal annars notað til þess að auglýsa Christchurch, bæinn sem hún býr í á Nýja-Sjálandi.

„Okkar stíll smellpassaði saman og við sömdum fleiri og fleiri lög. Stundum voru það mín lög sem hann bætti harmóníum við og svo öfugt. Síðan þá höfum við túrað mikið saman og gefið út live-plötu, Live at York Street, sem var eitt besta stúdíó hér í Nýja-Sjálandi en því var lokað.

Við höfum síðan haldið marga skemmtilega tónleika hér,“ segir hún. Þau hafa líka spilað utan Nýja-Sjálands en í fyrra ferðuðust þau til Maníla á Filippseyjum og úr varð heimildarmynd sem sýnd er um borð í flugvélum Air New Zealand.

Íslandsför þeirra verður einnig tekin upp. „Það kemur kvikmyndatökumaður frá LA sem ætlar að taka upp Airwaves og ætlar svo að fylgja okkur eftir á túrnum,“ segir Hera spennt fyrir heimkomunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.