Sport

Fór með KR á suðurpólinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Facebook
KR fékk sinn fulltrúa á Suðurpólninn í vikunni er Jóhannes Guðmundsson, starfsmaður Arctic Trucks, fór þangað ásamt fríðu föruneyti.

Arctic Trucks skipulagði ferð fyrir hollenska konu sem hafði það ætlunarverk að aka á Marrey Ferguson traktor alla leið á Suðurpólinn en það hófst núna í vikunni.

Ferðalagið tók 17 daga en alls voru eknir 2500 km. Ásamt traktornum voru tveir bílar frá Arctic Trucks með í förinni.

Einnig var fáni KR með í för en Jóhannes er mikill KR-ingur eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×