Lögreglan vill afsökunarbeiðni frá Browns 15. desember 2014 23:30 Hawkins í bolnum umdeilda. vísir/getty
Það er í tísku hjá bandarískum íþróttamönnum þessa dagana að mótmæla ofbeldi lögreglumanna í landinu. Löggunni í Cleveland var þó ekki skemmt í gær. Þá mætti Andrew Hawkins, leikmaður Cleveland Browns í NFL-deildinni, í bol þar sem á stóð: „Réttlæti fyrir Tamir Rice John Crawford." Rice er 12 ára drengur sem var skotinn af lögreglunni í Cleveland í síðasta mánuði. Þá hélt lögreglan að loftbyssa sem hann væri með væri alvöru byssa. Crawford var skotinn af lögreglunni í ágúst er hann var með loftriffil í Wal-Mart. Hawkins hljóp út á völlinn fyrir leik í þessum bol og lögreglan í borginni brást illa við. „Það er aumkunarvert að fylgjast með því er íþróttamenn þykjast vita eitthvað um lögin. Þeir ættu að halda sig við það sem þeir gera best. Lögreglan í Cleveland sér um öryggisgæslu á heimavelli Browns og félagið skuldar okkur afsökunarbeiðni," segir í yfirlýsingu frá lögreglunni. Íþróttamenn um öll Bandaríkin hafa síðustu viku verið í bolum þar sem á stendur: „I can't breathe" en þar er verið að mótmæla því að lögreglumaður í New York hafi ekki verið kærður fyrir sinn þátt í dauða Eric Garner.
NFL Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Bergur með tvö Íslandsmet á HM Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli KA slítur samstarfinu við Þór Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Dómari fótbraut óvart leikmann Carrick á blaðamannafundi: „Við eigum tvo frábæra leiki í þessari viku“ Sjá meira