Tímaritið Cosmopolitan er hrifið af því að flokka gagnkynhneigða karlmenn í allskyns flokka sem virðast hafa það markmið að hinar gagnkynhneigðu konur sem ætla vera með þessu mönnum þurfi aldrei að spyrja beint út í neitt einasta mál.
Það er alveg stórmerkilegt að árið 2014 haldi fólk enn að hægt sé að henda í flokka eftir breytum eins og kyni eða stjörnumerki. Eins og er gert hér, að flokka kynlífsstellingar eftir stjörnumerki. (Það er reyndar óskiljanlegt af hverju gagnkynhneigðir karlmenn sé teknir sérstaklega fram og hvar er sambærilegur listi fyrir konur og aðrar kynhneigðir? Af hverju eru þetta ekki bara stellingar fyrir fólk?)
Hér brot af þessari upptalningu.

(Það væri gaman að heyra hvort þetta eigi ekki almennt við flest fólk á einhverjum tímapunkti í samförum)
Stjörnumerkið nautið er:
áreiðanlegt, blítt, duglegt, framkvæmdaglatt, friðsamt, gæflynt, heimakært, hlédrægt, jarðbundið, með sterka einbeitingu, nautnabelgur, náttúrubarn, raunsætt, rólegt, skynsamt, trygglynt, varkárt, verndandi, vingjarnlegt og þrjóskt.

(Kannski rétt að benda á að það er ekki eina stellingin sem hægt er að taka „einn snöggan“ í og þessi stelling þarf heldur ekki að vera sérstaklega snögg. Ef þér þykir hún óþægileg þá mæli ég með því að þú farir í stellingu sem hentar þér og bólfélaganum betur)
Stjörnumerkið tvíburi er:
bráðþroska í hugsun, félagslyndur, fjörugur, forvitinn, glaðlegur, glaðlyndur, hress, líflegur, málglaður, prakkari, skarpur, skemmtilegur og stríðinn.

Stjörnumerkið krabbinn er:
góður, heimakær, hjálpsamur, hlédrægur, náttúrubarn, samúðarfullur, samviskusamur, skapandi, tilfinningaríkur, traustur, útsjónasamur, varkár, verndandi og viðkvæmur.
Ætli þessi lýsing eigi ekki við töluvert fleiri en einungis þá í krabbamerkinu? Samkvæmt þessum innihaldslýsingum á persónuleika þá mætti ætla að innileg stelling þar sem kynlífið byggist á trausti og nánd væri heppilegust. Undir það flokkast allskonar stellingar.
Ljón eru mjög rómantísk og reyna hafa allt rómó og kósí og hér einkennist kynlífi af nánd og innilegheitum.
Stjörnumerkið ljón er:
athafnasamt, einlægt, fyrirferðamikið, heiðarlegt, kraftmikið, lifandi, listrænt, opið, ráðríkt, sjálfstætt, skapandi, stjórnsamt, tygglynt og þrjóskt.
Það passar kannski betur að víxla stellingunum fyrir krabbann og ljónið!

Stjörnumerkið vog er:
ákveðin, brosmild, félagslynd, glaðleg, listræn, ljúf, opin, réttlát, skemmtileg, vinamörg og vingjarnleg.

Bogamaður er:
einbeittur, félagslyndur, fjörkálfur, forvitinn, frjálslegur, fróðleiksfús, íþróttaálfur, líflegur, orkubolti og ævintýragjarn.
Samkvæmt þessari lýsingu þá ætti kynlíf bogamanna að vera eins og tími í bootcamp eða crossfit.

Einstaklingsmunur er meira en kynjamunur, það er gott að muna það. Fólk stundar allskonar kynlíf en þú veist það ekki nema að spyrja.
Ekki gleyma að láta það fylgja sögunni hvað þér þykir gott.
Þá var skrifuð önnur bók, Sextrology, um svipað efni og er sú bók töluvert innihaldsmeiri og nákvæmari. Það getur verið gaman að blaða í gegnum hana þó gott sé að muna að einstaklingsmunur trompar stjörnumerkjamun.
Talaðu við bólfélagann. Á mánudegi getur maður verið í stuði fyrir eitt og á þriðjudegi annað, það er algjörlega eðlilegt. TALIÐ SAMAN.