Jón Margeir setti fjögur Íslandsmet um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2014 16:45 Jón Margeir Sverrisson á palli um helgina. Mynd/Fésbókarsíða Jóns Margeirs
Jón Margeir Sverrisson, gulldrengurinn frá Ólympíuleikunum í London fyrir tveimur árum, var í stuði á Íslandsmóti Sundsambands Íslands í 25 metra laug sem fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um síðustu helgi. Jón Margeir, sem er að verða 22 ára gamall í vikunni, setti alls fjögur Íslandsmet á mótinu en Kolbrún Alda Stefánsdóttir bætti þrjú met og Aníta Ósk Hrafnsdóttir sló eitt. Þetta kom fram á heimasíðu Íþróttasambands fatlaðra. Jón Margeir bætti metin í 200 metra fjórsundi (tvisvar sinnum), 50 metra baksundi og 100 metra skriðsundi. Kolbrún Alda setti sín met í 100 metra bringusundi, 200 metra fjórsundi og 200 metra bringusundi. Met Anítu var í 800 metra skriðsundi. Jón Margeir, Kolbrún Alda og Aníta Ósk eru þrjú af fremsta sundfólki Íslands í dag úr röðum fatlaðra í flokki þroskahamlaðra. Jón Margeir er á leiðinni til Manchester þar sem hann keppir á British Gas Open um helgina. Hann heldur því upp á 22 ára afmælið sitt í Englandi.Íslandsmetin hjá fötluðum á Íslandsmótinu 14. til 16. nóvember 2014: Jón Margeir Sverrisson SM14 200 fjórsund 2:17,18 Kolbrún Alda Stefánsdóttir SB14 100 bringusund 1:22,24 Kolbrún Alda Stefánsdóttir SM14 200 fjórsund 2:41,20 Jón Margeir Sverrisson SM14 200 fjórsund 2:15,44 Jón Margeir Sverrisson S14 50 baksund 0:29,73 Kolbrún Alda Stefánsdóttir SB14 200 bringusund 2:54,59 Aníta Ósk Hrafnsdóttir S14 800 frjáls aðferð 10:17,07 Jón Margeir Sverrisson S14 100 frjáls aðferð 0:53,41
Sund Mest lesið Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Íslenski boltinn Lengi getur vont versnað hjá Man. City Enski boltinn „Ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf“ Sport Uppgjörið: LASK - Víkingur 1-1 | Víkingar fara í umspilseinvígi eftir áramót Fótbolti Stjórnarmennirnir gátu ekki horft í augun á Frey Fótbolti Uppgjörið: Valur - Tindastóll 89-80 | Meistararnir upp úr fallsæti Körfubolti Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Handbolti Tottenham áfram í undanúrslit eftir sjö marka leik með mörgum mistökum Enski boltinn Áfall bætist við ógöngur Man. City Enski boltinn Selfoss fær leikmann sem hefur spilað meira en hundrað NBA leiki Körfubolti Fleiri fréttir Segist bara hafa óskað dómurunum gleðilegra jóla Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Meikle skaut Littler skelk í bringu Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Haltur Mahomes skoraði snertimark Dobey áfram en úrslitin alls ekki öll eftir bókinni Juric tekinn við Southampton Kolstad vann toppslaginn Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Dana áberandi í síðasta leik ársins Usyk vill að Fury snyrti skeggið sitt Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Fjögurra ára bann fyrir fölsun ferðaskjala Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Van Gerwen ætlar ekki að horfa á Luke Littler í kvöld Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Fernukonan komin heim og áritar í Smáralind í dag Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Fékk ráð frá Zelenskyj fyrir bardagann á móti Fury Sjá meira