Fótbolti

Andri Rafn: Menn eru að safna kröftum eftir síðasta leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska liðið fyrir leikinn í Álaborg.
Íslenska liðið fyrir leikinn í Álaborg. Vísir/Daníel
Miðjumaðurinn Andri Rafn Yeoman segir tilfinninguna fyrir seinni leik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM 2015 vera góða.

„Hún er nokkuð góð. Ég held að menn séu að safna kröftum eftir átökin í síðasta leik. Þetta verður eflaust svipaður leikur. Við megum helst ekki fá þetta útivallarmark á okkur,“ Andri en Ísland og Danmörk gerðu 0-0 jafntefli í fyrri leik liðanna í Álaborg.

„Bæði lið eru í þeirri stöðu að þau þurfa að skora mark. En ég býst við því að Danir verði áfram meira með boltann, en kannski ekki jafn mikið.

„Þeir eru mjög góðir á boltanum og þeir halda boltanum vel. Ef við byrjum aftarlega, erum rólegir og förum síðan fram og skorum eitt mark er það frábært. Þetta kemur allt saman í ljós,“ sagði Andri sem lék 20 deildarleiki með Breiðabliki á tímabilinu.

En hvernig metur Andri þetta danska lið, t.d. í samanburði við það franska sem Íslendingar mættu á Laugardalsvelli fyrir ári og tapaði 3-4 fyrir.

„Ég veit það ekki. Það er erfitt að átta sig á því, en þetta er ekkert svo ólík lið að mér finnst. Bæði lið halda boltanum vel og leita að færum, en sem betur fer fundu Danir fá slík gegn okkur,“ sagði Andri sem segir það gefa íslenska liðinu sjálfstraust að hafa nú þegar haldið einu sinni hreinu gegn danska liðinu.

„Við horfðum á leikinn aftur í gær, og auðvitað litast maður af tilfinningum og umfjöllun, og það kom mér eiginlega á óvart að við skildum vera eitthvað með boltann í leiknum. Maður var búinn að ímynda sér að þetta hefði verið miklu verra.

„Auðvitað lágum við aftarlega en svo lengi sem við fáum ekki á okkur mark er mér eiginlega slétt sama,“ sagði Andri að lokum.


Tengdar fréttir

Hólmbert: Tók á að verjast svona mikið

"Þetta þarf maður stundum að gera þegar maður er að spila á útivelli gegn mjög góðu liði," segir framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson og glotti eftir markalausa jafnteflið í Álaborg í kvöld.

Guðmundur: Annað hugarfar á útivelli

"Ég hefði oft á tíðum viljað sjá okkur halda boltanum betur í leiknum. Það voru mikil hlaup um allan völl en á miðjunni var þetta sérstaklega erfitt," sagði miðjumaðurinn Guðmundur Þórarinsson eftir markalausa jafntefli gegn Dönum í Álaborg í kvöld.

Ólafur Karl: Erfitt að glíma við Scholz

"Þetta var erfitt enda okkar áætlun að verjast. Ég ætlaði ekkert að fara á móti því," sagði Stjörnumaðurinn Ólafur Karl Finsen eftir leik Danmerkur og Íslands í Álaborg.

Einn nýliði í U-21 árs landsliðinu

Eyjólfur Sverrisson hefur valið hópinn hjá íslenska U-21 árs landsliðinu sem mætir Danmörku í tveimur umspilsleikjum um sæti í úrslitakeppni EM 2015 í Tékklandi.

Myndaveisla frá æfingu U-21 árs landsliðsins

Íslenska U-21 árs landsliðið í fótbolta æfði í Egilshöll í dag, en strákarnir undirbúa sig nú fyrir seinni leikinn gegn Danmörku í umspili um sæti á EM 2015.

Enginn leikmaður svindlaði allan leikinn

Hið sókndjarfa U-21 árs lið Dana hafði nánast skorað að vild í undankeppni EM en átti engin svör við sterkum varnarleik Íslands í Álaborg í gær. Rimma liðanna um laust sæti á EM er galopin eftir markalaust jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×