Lífið

„Nei, ég nota ekki getnaðarvarnir. Ég er á pillunni samt“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Strákarnir í sjónvarpsþættinum Áttunni á Bravó tóku sitt vanalega skólaspjall í síðasta þætti en að þessu sinni heimsóttu þeir Menntaskólann í Kópavogi.

Eins og sést í meðfylgjandi myndskeiði voru nemendur spurðir að ýmsu, til dæmis hvort þeim þætti kynlíf gott. Voru flestir sammála um að svo væri.

„Kynlíf er það besta sem ég hef gert á ævinni,“ segir einn nemandanna. Aðspurðir hvort þeir notuðu getnaðarvarnir voru ekki allir sem notuðu þær. Ein stúlknanna hefur þó eitthvað misskilið spurninguna því hennar svar var:

„Nei, ég nota ekki getnaðarvarnir. Ég er á pillunni samt.“

Þá voru nemendur spurðir út í stjórnmál en þá varð fátt um svör.


Tengdar fréttir

Biðja lögregluna og nærstadda afsökunar

"Þetta var vanhugsað af okkar hálfu og við virðum störf lögreglunnar miklu meira en þetta,“ segja félagarnir Egill Ploder, Nökkvi Fjalar og Róbert Úlfars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.