Fótbolti

Arnór Ingvi og félagar með mikilvægan sigur

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór Ingvi og félagar unnu mikilvægan sigur.
Arnór Ingvi og félagar unnu mikilvægan sigur. Vísir/Norköpping
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í sænska úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en gengi liða þeirra var afar ólíkt.

Arnór Ingvi Traustason spilaði í 77. mínútur fyrir IFK Norköpping sem vann mikilvægan sigur gegn Gefle í fallbaráttunni, 1-2. Með sigrinum fór Norköpping upp af hættusvæðinu, í bili að minnsta kosti.

Kristinn Jónsson og félagar í Brommapojkarna steinlágu fyrir FH-bönunum í AIK á heimavelli, 4-0. Kristinn spilaði allan leikinn fyrir Brommapojkarna sem eru fallnir niður í B-deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×