Eggert Skúlason gerir úttekt á DV Stefán Árni Pálsson skrifar 6. október 2014 12:51 Þorsteinn Guðnason, Hallgrímur Thorsteinsson og Eggert Skúlason.
Eggert Skúlason verður í sérstöku teymi sem mun fara faglega yfir starfsemi DV og aðstoða við stefnumótun fyrirtækisins. Eygló Jónsdóttir og Jón Garðar Hreiðarsson eru einnig í teyminu. Eggert og Eygló starfa bæði hjá almanntengslafyrirtækinu Franca. Starfsmönnum var tilkynnt um þetta á fundi á föstudaginn en samkvæmt heimildum Vísis hafa sumir þeirra áhyggjur af fyrirhugaðri úttekt. Stjórn útgáfufélags DV hafði áður fallið frá þeirri ákvörðun að láta skoða sérstaklega faglega þætti ritstjórnar blaðsins en ritstjóri blaðsins segir að sú vinna sem sé að fara af stað snúi ekkert sérstaklega að ritstjórn blaðsins. Á sínum tíma voru blaðamenn DV ósáttir við þá ákvörðun og töldu að með henni væri stjórn félagsins að gagnrýna störf blaðamanna „Við erum að móta ákveðna stefnu innan fyrirtækisins og þau ætla að aðstoða okkur við það,“ segir Hallgrímur Thorsteinsson, ritstjóri DV, í samtali við Vísi. „Þetta er svona eins og þegar fyrirtæki eru almennt skoðuð og gera faglega úttekt á starfseminni. Þessir aðilar munu síðan aðstoða okkur við að gera einskonar SWOT greiningu.“Eiður Smári og Eggert Skúlason hjólandi á hringveginum til styrktar Hjartaheillum sumarið 2005.Vísir/PjeturHallgrímur segir að starfsmenn DV hafi sumir haft ákveðnar athugasemdir við það að Eggert Skúlason kæmi að vinnunni og þá aðallega vegna tengsla hans við blaðið í gegnum tíðina. Eggert Skúlason er fyrrverandi fréttamaður og var í mörg ár talsmaður knattspyrnumannsins Eiðs Smára Guðjohnsen. Eiður Smári hefur áður stefnt ritstjórum og blaðamanni DV fyrir að fjalla opinberlega um einkamálefni hans. „Við erum einfaldlega að fara út í þá vinnu að móta nýja stefnu fyrirtækisins,“ segir Þorsteinn Guðnason, stjórnarmaður DV. „Teymið mun ræða við alla starfsmenn fyrirtækisins í einrúmi og fara yfir það með þeim hvernig þau vilja sjá ásýnd DV og hvað þurfi að bæta.“ Þorsteinn segir að þetta sé ávallt gert þegar fyrirtæki fari út í stefnumótun. „Ég verð ekki við í næstu viku og því mun teymið hafa aðsetur á skrifstofunni minni. Við munum einnig fá aðstoð frá þeim við að meta ritstjórnarlegt sjálfstæði miðilsins og er það einsdæmi í sögu fjölmiðla á Ísland.“
Tengdar fréttir Mikill hasar í herbúðum DV Blaðamenn ekki sáttir við gagnrýni á störf Reynis Traustasonar 8. september 2014 10:30 „Ég hélt að ég myndi aldrei upplifa svona í okkar samfélagi“ Ráðherra sagðist hafa orðið fyrir margvíslegum hótunum á undanförnum mánuðum í þættinum Eyjan á Stöð 2. 14. september 2014 19:00 Vonar að tímabundin afskipti bæti íslenska blaðamennsku "Á undanförnum árum hefur DV fjallað í 290 greinum um mig, fjölskyldu mína og fyrirtæki sem ég veiti forsöðu,“ segir Björn Leifsson betur þekktur sem Bjössi í World Class. 6. september 2014 18:27 DV kemur ekki út á morgun "Deilurnar í hluthafahópnum hafa verið erfiðar og margir eru sárir vegna yfirlýsinga og framgöngu sumra stjórnarmanna,“ segir Hallgrímur Thorsteinsson, nýr ritstjóri blaðsins 8. september 2014 14:04 Hallgrímur Thorsteinsson ráðinn ritstjóri DV Reynir Traustason hefur verið leystur undan starfsskyldum sínum og Hallgrímur hefur störf á morgun. 7. september 2014 19:03 Setuverkfall á DV: Blaðamenn sitja aðgerðarlausir Samkvæmt heimildum Vísis ríkir eiginlegt setuverkfall á ritstjórn DV í Tryggvagötu. Blaðamenn sitja aðgerðarlausir við tölvuna og umbrotsfólk er farið heim. 8. september 2014 15:02 Ósætti á ritstjórn DV: Blaðamenn íhuga stöðu sína Fagleg úttekt á starfi DV, sem nú hefur verið hætt við, lagðist ekki vel í starfsmenn. Stjórnarformaður segir að um misskilning sé að ræða. 9. september 2014 09:00 Fráhvarf Ólafs breytir engu fyrir framhald DV "Mér fannst Reynir stundum ganga full nærri fólki. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ 7. september 2014 15:48 Átökin um DV: Jón Trausti hættur og Þorsteinn tekur við Þorsteinn Guðnason, stjórnarformaður DV ehf., er tekinn við af Jóni Trausta Reynissyni sem framkvæmdastjóri félagsins. Heiða B. Heiðarsdóttir hefur samið um starfslok og mun hætta sem auglýsingastjóri blaðsins. 12. september 2014 13:38 Hætt við faglega úttekt á DV Stjórn útgáfufélags DV hefur fallið frá þeirri ákvörðun að láta skoða sérstaklega faglega þætti ritstjórnar blaðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá útgáfufélaginu. 8. september 2014 18:11 Hallgrímur fór yfir málin með ritstjórninni Nýr ritstjóri DV, Hallgrímur Thorsteinsson, fundaði með ritstjórn sinni í húsakynnum DV í Tryggvagötu í morgun. 8. september 2014 09:45 „Hann er búinn að fella mig og ég ligg í valnum“ „Ég má ekki hitta fólkið, ekki einu sinni til að kveðja,“ segir Reynir Traustason, 9. september 2014 09:25 Sagðist ekki hafa séð ráðningarsamning Reynis "Okkur finnst vegið að trúverðugleika allra sem starfa hér,“ segir blaðamaður DV. 8. september 2014 12:18 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Sjá meira
Mikill hasar í herbúðum DV Blaðamenn ekki sáttir við gagnrýni á störf Reynis Traustasonar 8. september 2014 10:30
„Ég hélt að ég myndi aldrei upplifa svona í okkar samfélagi“ Ráðherra sagðist hafa orðið fyrir margvíslegum hótunum á undanförnum mánuðum í þættinum Eyjan á Stöð 2. 14. september 2014 19:00
Vonar að tímabundin afskipti bæti íslenska blaðamennsku "Á undanförnum árum hefur DV fjallað í 290 greinum um mig, fjölskyldu mína og fyrirtæki sem ég veiti forsöðu,“ segir Björn Leifsson betur þekktur sem Bjössi í World Class. 6. september 2014 18:27
DV kemur ekki út á morgun "Deilurnar í hluthafahópnum hafa verið erfiðar og margir eru sárir vegna yfirlýsinga og framgöngu sumra stjórnarmanna,“ segir Hallgrímur Thorsteinsson, nýr ritstjóri blaðsins 8. september 2014 14:04
Hallgrímur Thorsteinsson ráðinn ritstjóri DV Reynir Traustason hefur verið leystur undan starfsskyldum sínum og Hallgrímur hefur störf á morgun. 7. september 2014 19:03
Setuverkfall á DV: Blaðamenn sitja aðgerðarlausir Samkvæmt heimildum Vísis ríkir eiginlegt setuverkfall á ritstjórn DV í Tryggvagötu. Blaðamenn sitja aðgerðarlausir við tölvuna og umbrotsfólk er farið heim. 8. september 2014 15:02
Ósætti á ritstjórn DV: Blaðamenn íhuga stöðu sína Fagleg úttekt á starfi DV, sem nú hefur verið hætt við, lagðist ekki vel í starfsmenn. Stjórnarformaður segir að um misskilning sé að ræða. 9. september 2014 09:00
Fráhvarf Ólafs breytir engu fyrir framhald DV "Mér fannst Reynir stundum ganga full nærri fólki. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ 7. september 2014 15:48
Átökin um DV: Jón Trausti hættur og Þorsteinn tekur við Þorsteinn Guðnason, stjórnarformaður DV ehf., er tekinn við af Jóni Trausta Reynissyni sem framkvæmdastjóri félagsins. Heiða B. Heiðarsdóttir hefur samið um starfslok og mun hætta sem auglýsingastjóri blaðsins. 12. september 2014 13:38
Hætt við faglega úttekt á DV Stjórn útgáfufélags DV hefur fallið frá þeirri ákvörðun að láta skoða sérstaklega faglega þætti ritstjórnar blaðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá útgáfufélaginu. 8. september 2014 18:11
Hallgrímur fór yfir málin með ritstjórninni Nýr ritstjóri DV, Hallgrímur Thorsteinsson, fundaði með ritstjórn sinni í húsakynnum DV í Tryggvagötu í morgun. 8. september 2014 09:45
„Hann er búinn að fella mig og ég ligg í valnum“ „Ég má ekki hitta fólkið, ekki einu sinni til að kveðja,“ segir Reynir Traustason, 9. september 2014 09:25
Sagðist ekki hafa séð ráðningarsamning Reynis "Okkur finnst vegið að trúverðugleika allra sem starfa hér,“ segir blaðamaður DV. 8. september 2014 12:18