Skoðun

Harma hlut framhaldsskólanna í fjárlögum

Benedikt Traustason og Sigmar Aron Ómarsson skrifar
Til þess er málið varðar,

Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, harmar að hlutur framhaldsskólanna skuli ekki leiðréttur í fjárlagafrumvarpi ársins 2015. Skv. nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að á árunum 2008 – 2012 lækkuðu fjárframlög til skólanna um 2 milljarða. Þetta jafngildir um 8% af framlögum sem áætluð eru árið 2015. Staðan er núna sú, skv. áðurnefndri skýrslu Ríkisendurskoðunar, að meirihluti skólanna eru reknir með halla.

Gríðarlega hefur verið skorið niður, námshópar stækkaðir, starfsfólki og námsbrautum fækkað, stuðningur við nemendur minnkaður, verkleg kennsla minnkuð og þörf endurnýjun tækjabúnaðar á mörgum stöðum sett á ís. Að auki hafa skólar í örvæntingu sinni gripið til þess ráðs að hækka innritunar- og efnisgjöld nemenda til þess að reyna að vega upp á móti skerðingum undanfarinna ára. Kemur það verst við þá sem standa höllum fæti í samfélaginu.

Á sama tíma hafa reglur um veitingu jöfnunarstyrks til þeirra sem sækja nám fjarri sínum heimahögum verið hertar. Skerðir það óneitanlega jafnt aðgengi framhaldsskólanema að námi við hæfi, s.í.l. þeirra sem búa á landsbyggðinni. Af framantöldu ætti öllum að vera ljóst að aðstæður nemenda í framhaldsskólum hafa versnað til mikilla muna á undanförnum árum. Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar segir m.a. um menntamál:

„Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á að efla menntakerfið með hagsmuni nemenda og þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Fjölbreytileiki í skólastarfi er lykill að kraftmiklu og skapandi samfélagi. Áhersla verður lögð á samráð við hagsmunaaðila þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi ríkisins um skipulag náms og kennslu.“

Þessi markmið eru góð en ekki er að sjá á stefnu stjórnvalda að þeim sé í raun fylgt eftir. Menntakerfið verður ekki eflt nema viðunandi fjármagn verði sett í skólana. Fjölbreytileiki í skólastarfi, sem vissulega er lykill að kraftmiklu og skapandi samfélagi, verður heldur ekki tryggður nema með viðunandi fjármagni. Einnig hefur margoft verið bent á að mikilvægt sé að skapa ungu fólki vænleg skilyrði til búsetu hér á landi. Þar er efling menntakerfisins lykilþáttur. Í fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir að nemendafjöldi minnki um tæp 5%. Ekki fæst séð hvernig það markmið muni nást öðruvísi en að hefta aðgang eldri nemenda að námi í ljósi þess að megináhersla verður lögð á að mæta óskum nemenda undir 25 ára aldri um skólavist. Sé það raunin er það gróf mismunun á nemendum og gæti það fækkað þeim sem stunda verknám, enda er meðalaldur nemenda á starfsnámsbrautum 25,2 ár. Það er þvert á stefnu stjórnvalda en í stjórnarsáttmálanum segir: “Auka þarf áherslu á nám í iðn-, verk-, tækni-, hönnunar- og listgreinum og efla tengsl þessara námsgreina við atvinnulífið.” SÍF hvetur alla þá sem koma að vinnu við gerð fjárlaga fyrir árið 2015 til að standa vörð um þá grunnstoð íslensks samfélags sem menntakerfið er.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×