Matur

Súpergrænt pestó og frækex

Rikka skrifar

Þessi pestó uppskrift er með þeim einfaldari og hollari sem fyrirfinnst. Ekki er verra að það er á sama tíma ótrúlega bragðgott, bæði fyrir bragðlaukana og sálina. Frækexið er örlítið flóknara en frábært að eiga til sem millimálsbita með allskyns gómsætu áleggi. 

Supergrænt pestó

1/2 brokkolí

8 grænkálsslauf


2-3 hvítlauksrif

40 g steinselja

40 g basillauf

80 g valhnetur

80 ml ólífuolía

safi af 1 sítrónu

salt





Frækex

40 g chia fræ

40 g sólblómafræ

40 g graskersfræ

40 g sesamfræ

200 ml vatn

1 tsk ítalskt hvítlaukskrydd

1 msk ferskt saxað rósmarín

sjávarsalt, eftir smekk



Hitið ofninn í 150°C. Setjið allt saman í skál og látið standa í 5 mínútur. Deigið á að vera svolítið þykkt í sér. Dreifið deiginu á smjörpappírsklædda ofnplötu 5-6 mm þykkt. Bakið í 30 mín. Takið kex úr ofni, leggið smjörpappír ofan á og snúið við. Skerið kexið í bita, setjið aftur í ofninn og bakið áfram í 30 mínútur. 


Tengdar fréttir

Orkubitar- frábærir milli mála

Færðu stundum sykurlöngun seinnipartinn? Þessir orkubitar eru frábærir til að narta í þegar löngunin í sætindi gera var við sig.

Hollar amerískar pönnukökur

Hollar og bragðgóðar amerískar pönnukökur sem einfalt er að búa til og tilvaldar í brönsinn um helgar eða á sparídögum

Snakk á milli mála

Í léttum sprettum í gær bjó Rikka til æðislegt snakk sem er tilvalið að narta í á milli mála. Hér koma uppskriftirnar.

Fljótlegar og girnilegar omelettumúffur

Í Léttum sprettum í gær bjó ég til fljótlegar og girnilegar omelettumúffur sem eru að auki bráðhollar og gott að eiga til í ísskápnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.