Styrkur brennisteinsgass mestur á Héraði seinnipartinn Atli Ísleifsson skrifar 12. september 2014 12:16 Ekki dregur úr gosinu í Holuhrauni, en samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Vísir/Egill
Hraun rennur áfram í farveg Jökulsár á Fjöllum og flæmist áin til austurs undan hrauninu. Árfarvegurinn þrengist og nær hraunið fimm til tíu metra upp yfir farveg árinnar. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að ekki sé sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga upp. Ekki dregur úr gosinu í Holuhrauni, en samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Í flugi vísindamanna yfir svæðið í gær sáust ekki nýjar breytingar á yfirborði jökulsins. „Loftgæði í byggð: Spár gefa til kynna að hár styrkur brennisteinsgass (SO2) og annarra gosefna gæti orðið á norðanverðum Austfjörðum, Fljótsdal, Héraði, Jökuldal og Vopnafirði. Spáin gefur til kynna að styrkur geti orðið mestur á Héraði seinnipartinn. Svæði með háum styrk gæti orðið stærra. Umhverfisstofnun stefnir að því að setja upp mælitæki á Akureyri og Suðurlandi. Taka verður tillit til landfræðilegra aðstæðna á hverjum stað við mat loftgæða. Ef fólk finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu. Tafla um viðbrögð við loftmengun hefur verið birt á vef Umhverfisstofnunar www.ust.is. Hægt er að fylgjast með mælingum á loftgæðum á síðunni loftgæði.is. Veðurstofan birtir textaspár á vef sínum og viðvaranir eftir því sem aðstæður breytast. Tilmæli og leiðbeiningar frá Sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.Loftgæði á gossvæðinu: Mikið gasstreymi er áfram í og kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar. Allir vísindamenn á vettvangi hafa gasmæla á sér til þess að tryggja öryggi þeirra við störf. Jarðskjálftavirkni í öskju Bárðarbungu breytist lítið frá degi til dags. Skjálftarnir dreifast einkum um norður- og suðausturhluta öskjumisgengisins. Dregið hefur enn úr skjálftum við norðurenda kvikugangsins. Rúmlega 50 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Dregið hefur úr óróa. GPS mælingar:Smávægilegar jarðskorpuhreyfingar sem mælast umhverfis ganginn benda til þess að kvikustreymi inn í ganginn sé heldur meira en útstreymi í gosinu í Holuhrauni.Þegar litið er yfir tímabilið frá því gos hófst má hins vegar greina hreyfingar í átt að Bárðarbungu sem benda til áframhaldandi sigs í öskjunni.GPS stöð var sett upp á Bárðarbungu í gær til þess að fylgjast með sigi öskjunnar. Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annar staðar undir jöklinum.Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi. Öskufall gæti orðið nokkuð. Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir,“ segir í tilkynningunni. Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og kóði fyrir Öskju er grænn. Post by Jarðvísindastofnun Háskólans.
Bárðarbunga Mest lesið Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Innlent „Svaraðu spurningunni“ Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Innlent Enn í lífshættulegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Sjá meira