Vopnahléið á Gasa framlengt um fimm daga
Vopnahléið sem samið var um mun standa yfir í fimm sólarhringa en fyrri drög gerðu ráð fyrir 72-framlengingu.
„Það mun vara í fimm daga,“ sagði einn af samningamönnum Palestínu, Azzam al-Ahmed, í kvöld og bætti við að enn ætti þó eftir að ná samkomulagi í mörgum veigamiklum þáttum. Kröfur Palestínumanna gagna meðal annars út á að Ísraelsmenn heimili takmarkaðan flutning hjálpargagna inn á Gasaströndina en hafi svæðið þó enn í herkví.
Ísraelsmenn hafa enn ekki tjáð sig um vopnahléið.
Vopnahlé, sem staðið hefur yfir frá því á sunnudagskvöld, átti að enda á miðnætti en fréttir bárust af flugskeytaárás frá Gasasvæðinu skömmu eftir klukkan 21 á staðartíma í kvöld. Hamas segir eldflaugina ekki hafa verið á þeirra vegum.
Tengdar fréttir
Vopnahléinu á Gasa lýkur á miðnætti
Samninganefnd Palestínumanna metur nú tillögur Egypta í deilunni við Ísraela en vopnahléið á Gasaströndinni rennur út á miðnætti í kvöld.
Vopnahléinu á Gasa er lokið
Hamas samtökin á Gasa hafa nú alfarið hafnað framlengingu á vopnahléinu sem tók gildi á þriðjudag. Því lauk klukkan fimm í morgun og skömmu síðar bárust fregnir frá Ísrael þess efnis að Hamas hefði skotið nokkrum eldflaugum inn í Ísrael.
Íslendingur á Gasa: Erfiðast að horfa upp á börnin
Sáttasemjarar í Egyptalandi keppast nú við að miðla málum milli Ísraels- og Palestínumanna, en þriggja sólarhringa vopnahlé rennur út á miðnætti í kvöld. Íslenskur skurðhjúkrunarfræðingur sem hefur starfað á Gasa segir mikla spennu á svæðinu.
Um 8.800 hús á Gasa algerlega eyðilögð
Yfirstandandi hernaðaraðgerð Ísraela er sú sem valdið hefur mestum skemmdum á byggingum á Gasaströndinni nokkurn tímann.
Friðarviðræður að leysast upp
Sendinefnd Palestínu ætlar að yfirgefa Kaíró, muni sendinefnd Ísrael ekki snúa aftur.
Allt með kyrrum kjörum á Gasa í dag
Þriggja daga vopnahlé sem hófst á Gasaströndinni klukkan níu í gærkvöldi að íslenskum tíma hefur verið virt af báðum deiluaðilum hingað til. Ef friðurinn heldur munu Ísraelar senda fulltrúa sína til Kaíró í Egyptalandi síðar í dag þar sem ræða á um lengra hlé á átökunum sem þegar hafa kostað um tvö þúsund manns lífið.
Flugskeytum skotið frá Gasa
Yfirstandandi vopnahlé var rofið á áttunda tímanum í kvöld þegar flugskeytum var skotið á suðurhluta Ísraels.
Sprengjubrot lentu í garði barnaþorps SOS
Barnaþorpið á Gasa er undir miklu álagi vegna loftárása. Samtökin krefjast þess að deiluaðilar virði mannréttindi barna.
Litlar horfur á vopnahléi á Gaza
Þrátefli í samningaviðræðum. Palestínumenn skjóta enn eldflaugum yfir til Ísraels og fjórir féllu á Gaza í dag.
Lítið miðar í friðarátt á Gasa
„Það eru engar forsendur fyrir viðræðum eftir að Hamas rauf vopnahléið,“ sagði Mark Regev, talsmaður Ísraelsstjórnar.
Hamas vilja svör í dag
Samtökin fara fram á að herkví Gasa verði aflétt og að Ísraelsmenn sleppi föngum.
Palestínumenn samþykkja nýtt vopnahlé
Ísraelsmenn eiga þó eftir að samþykkja tillögu Egypta að nýju 72 stunda vopnahléi svo friðarviðræður geti haldið áfram.