Hamilton sem ræsti af stað á þjónustusvæðinu lenti í vandræðum strax á fyrsta hring. Hann lenti á dekkjavegg en gat haldið áfram. Bremsurnar hans virkuðu ekki sem skildi.
„Ég lenti á vegg, bremsurnar mínar gáfust upp,“ sagði Hamilton í talstöðinni.
Brautin var blaut í upphafi keppninnar. Allir ökumenn hófu keppnina á milli-regndekkjum.
Öryggisbíllinn kom út á níunda hring þegar Marcus Ericsson missti stjórn á Caterham bílnum lenti á varnarvegg. Ökumenn nýttu tækifærið til að taka þjónustusvæðið og skiptu margir hverjir yfir á slétt dekk.
Tímasetning öryggisbílsins hafði gríðarleg áhrif á framvindu keppninnar. Fremstu ökumenn voru komnir framhjá þjónustusvæðinu þegar öryggisbíllinn kom út á brautina. Þeir lentu því í miðri þvögunni eftir sín þjónustuhlé. Það stokkaði hópinn talsvert upp og gerði keppnina gríðarlega spennandi.
Romain Grosjean á Lotus missti stjórn á bílnum í þann mund sem öryggisbíllinn átti að fara inn. Öryggisbíllinn ílengdist vegna þessa á brautinni.
Sergio Perez datt út á 23. hring. Hann missti stjórn á bílnum í síðustu beygju brautarinnar og lenti á varnarvegg á ráskaflanum. Öryggisbíllinn var kallaður til aftur. Báðir Force India bílarnir voru þar með dottnir út. Nico Hulkenberg hafði dottið út rétt áður en Perez lenti á veggnum.
Sebastian Vettel snérist á ráskaflanum en náði að sleppa við að varnarvegginn sem Perez hafði þegar lent á.
Rosberg óskaði eftir því við liðið að Hamilton hleypti honum fram úr. Hamilton brást við og sagði „Ef hann kemst nógu nálægt þá skal ég hleypa honum í gegn“.
Rosberg komst hins vegar ekki nógu nálægt til að eðlilegt væri að hleypa honum fram úr. Rosberg tók þá þjónustuhlé.
Fernando Alonso, Lewis Hamilton og Daniel Ricciardo börðust af hörku síðustu 10 hringi keppninnar. Nico Rosberg kom á mikilli ferð á ferskum dekkjum. Hann var um það bil 3 sekúndum fljótari á hring og nálgaðist efstu þrjá menn hratt.
Ricciardo náði fyrsta sætinu af Alonso þegar 3 hringir voru eftir og lét forystuna ekki af hendi eftir það.

„Það er alltaf gaman að komast á verðlaunapall. Við tókum mikla áhættu með dekkin í dag og hún borgaði sig, þótt við höfum ekki unnið. Við vorum nálægt því að vinna en annað sætið er alls ekki slæmt,“ sagði Alonso sem var gríðarlega kátur á verðlaunapallinum.
„Ekki ein af mínum bestu frammistöðum en ég þakka guði fyrir að bíllinn skemmdist ekki á fyrsta hring þegar ég lenti á veggnum,“ sagði Hamilton eftir keppnina.
„Fyrsti öryggisbíllinn kom út á allra versta tíma fyrir mig. Mér tókst bara ekki að láta þetta ganga upp í dag. Við þrufum að ræða þetta með hvort Lewis hefði átt að hleypa mér fram úr, innan liðsins,“ sagði niðurlútur Nico Rosberg.

1.Daniel Ricciardo - Red Bull - 25 stig
2.Fernando Alonso - Ferrari - 18 stig
3.Lewis Hamilton - Mercedes - 15 stig
4.Nico Rosberg - Mercedes - 12 stig
5.Felipe Massa - Williams - 10 stig
6.Kimi Raikkonen - Ferrari - 8 stig
7.Sebastian Vettel - Red Bull - 6 stig
8.Valtteri Bottas - Williams - 4 stig
9.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - 2 stig
10.Jenson Button - McLaren - 1 stig
11.Adrian Sutil - Sauber
12.Kevin Magnussen - McLaren
13.Pastor Maldonado - Lotus
14.Daniil Kvyat - Toro Rosso
15.Jules Bianchi - Marussia
16.Max Chilton - Marussia
Þessir duttu út:
Esteban Gutierrez - Sauber
Kamui Kobayashi - Caterham
Sergio Perez - Force India
Nico Hulkenberg - Force India
Romain Grosjean - Lotus
Marcus Ericsson - Caterham