Bólurnar burt Rikka skrifar 11. júní 2014 14:00 Leiðindabólur Mynd/skjaskot
Eins og það að hafa áhyggjur af bólum í andlitinum við og við sé ekki nóg, þá þurfa sumir að hafa áhyggjur af bólum á bakinu í þokkabót.Bólur eru ekki einungis sniðnar fyrir unglinga... ó, nei. Við fáum bólur á öllum aldri. Bólur á bakinu myndast af sömu ástæðu og bólurnar í andlitinu, þetta eru oftast stíflaðir eða bólgnir fitukirtlar. Þeir sem að stunda mikla líkamsrækt og eru með viðkvæma húð hafa alloft lent í því að fá bólur á bakið. Íþróttaföt eru oft til þess gerð að halda vel við líkamann og því þrengri en fötin sem við erum kannski í dagsdaglega. Þetta gerir það að verkum að svitinn sem myndast við átökin nuddast við líkamann og erta hann. Þá myndast upplagt uppvaxtarskilyrði fyrir bólur. Sjampó, hárnæring og aðrar hármótunarvörur geta líka verið skaðvaldurinn og borgar það sig að skola bakið vel eftir hárþvott. Lausnin við þessum leiðindum er að drífa sig alltaf í sturtu eftir líkamsræktina. Gott er svo að setja Tea Tree olíu í bómul eða á eyrnapinna og renna yfir bakið. Öðru hverju er svo upplagt að skrúbba bakið með eftirfarandi blöndu:Bólurnar burt1 mulin aspirín1 tsk eplaedik1 tsk soðið vatnBlandið öllu saman og nuddið á bólurnar. Látið standa í nokkrar mínútur og skolið svo af.
Heilsa Mest lesið Dóra Júlía og Bára gengu í það heilaga Lífið Æskudraumurinn varð að veruleika Lífið Álfurinn á slæmum stað: „Þetta voru erfið jól“ Lífið Pitt og Jolie loksins skilin Lífið Dísella „loksins“ trúlofuð Lífið Steindi og Saga í stjörnuprýddum skets um typpalokk Lífið Stjörnulífið: Svona voru jólin hjá stjörnum landsins Lífið Herra Hnetusmjör með stærsta lag ársins Tónlist Orri Steinn og Sylvía Rós eiga von á stúlku Lífið „Gæti stofnað nýjan stjórnmálaflokk og búið til podcast þátt“ Lífið Fleiri fréttir Húðrútína Önnu Guðnýjar Sjá meira