Tónlist

Fleiri listamenn á ATP-hátíðina

Ólafur Arnalds kemur fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.
Ólafur Arnalds kemur fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Vísir/Stefán
ATP-tónlistarhátíðin á Íslandi hefur nú bætt við auka tónleikum sem fara fram í Hljómahöll, Reykjanesbæ dagana 8. og 9. júlí, eða mitt á milli tónleika Neil Young & Crazy Horse og hátíðarinnar sjálfrar í Ásbrú.

Kvöldið 8. júlí munu ATP leggja undir sig Hljómahöll fyrir svokallað ATP label kvöld, þar sem fram koma sveitirnar Fuck Buttons, Hebronix og Eaux auk þess sem stofnandi ATP, Barry Hogan mun þeyta skífum.

Kvöldið 9. júlí kemur svo Ólafur Arnalds fram. „Ég mun koma fram með lítilli strengjasveit og ætlum við að skapa innilega og persónulega stemmingu í Hljómahöllinni. Hljómahöllin er spennandi nýr tónleikastaður og hátíðin skartar einu flottasta læn-öppi sem ég hef séð í lengri tíma," segir Ólafur um tónleikana.

Tónleikar þessir hefjast klukkan átta, eru öllum opnir og gildir ATP armband sem aðgangsmiði, en almennur miði kostar 2.500 krónur. Áhugasamir eru hvattir til að tryggja sér miða í tíma þar sem sem takmarkaður fjöldi miða er í almennri sölu.

„Nú bjóðum við gestum ATP Iceland upp á sex daga veislu með því besta sem er að gerast í tónlist í heiminum. Það lá beinast við að halda tónleika milli Neil Young og hátíðardaganna og Hljómahöll er eingöngu 5 mínútur frá hátíðarsvæðinu, við hliðina á Rokksafni Íslands í Reykjanesbæ,“ segir Tómas Young, skipuleggjandi ATP hér á landi.

Það er því ljóst að tónelskir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í Reykjanesbæ í júlí, en á hátíðinni sjálfri koma fram hljómsveitir á borð við Portishead, Interpol, Mogwai, Dlowdive, Shellac, Devendra Banhart (sóló), Kurt Vile & The Violators, Swans, Loop, Low, Liars og margar fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.