Fótbolti

Margrét Lára sækir innblástur til Ásdísar Ránar

Mynd/Instagram
Margrét Lára Viðarsdóttir er komin 40 vikur á leið en er enn á fullu í þrekæfingum.

Silja Úlfarsdóttir, fyrrum hlaupadrottning og þjálfari, birti meðfylgjandi mynd af Margréti Láru á Instagram-síðunni sinni en þar sést sú síðarnefnda taka á því í stúkunni á Kaplakrikavelli.

Silja segir einnig að þær hafi sótt sér innblástur til Ásdísar Ránar - ísdrottningarinnar - sem byrjaði með nýjan þátt á Stöð 2 í gærkvöldi.

„@mlv9 komin 40 vikur. Workout inspired by #heimurisdrottningarinnar @asdisran,“ skrifaði Silja á síðuna.

Margrét Lára er markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi og á nú von á sínu fyrsta barni.


Tengdar fréttir

Laumuðust inn á Laugardalsvöllinn

"Ég er búin að fá mjög jákvæð viðbrögð og allir virðast hafa skemmt sér konunglega yfir þessu,“ segir fyrirsætan og þáttastjórnandinn Ásdís Rán Gunnarsdóttir, en fyrsti þátturinn af Heimi Ísdrottningarinnar var sýndur á Stöð 2 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×