Berbrjósta sjálfsmyndir Sigga dögg kynfræðingur skrifar 3. júní 2014 09:00 Þetta gæti orðið nýjasta æðið á Íslandi í sumar. Skjáskot
Þrjár vinkonur fóru í ferðalag fyrir tveimur árum og ákváðu að krydda aðeins sjálfsmyndirnar með því að vera berar að ofan. Út frá einn mynd varð önnur og áður en þær vissu af var myndin orðin að verkefninu „The Topless Tour“ með yfir 20.000 fylgjendur á Instagram. Konur, og nokkrir karlar, hvaðanæva af taka nú myndir af sér berbrjósta á ferðalagi og deila með þeim stöllum. Ég spái því að þetta verði heitt „trend“ meðal ferðalanga á Íslandi í sumar en þó ber að hafa eitt í huga. Lykillinn er að þetta er mynd sem maður tekur sjálfur eða gefur leyfi að sé tekin af manni. Ekki vera að sniglast um sundlaugabakkann eða í Nauthólsvík og taka myndir af grunlausum baðgestum að sóla sig berum að ofan. Reyndar getur þetta verið hluti af stærra máli, eins og Scout Willis, dóttir Demi Moore og Bruce Willis bendir réttilega á. Svo fögnum sumrinu, sólinni og brjóstunum.
Heilsa Lífið Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið