Krassandi kræsingar Sigga dögg kynfræðingur skrifar 9. júní 2014 20:00
Það hefur skapast ákveðin hefð, t.d. í gæsunum og steggjunum, fyrir því að hafa kynferðislegar skírskotanir, bæði í skreytingum, leikjum og mat, í gæsunum og steggjunum. Þessar útfærslur á kynferðislegum tengingum þurfa ekki að vera kostnaðarsamar og reynir í raun meira á hugvit viðkomandi frekar en budduna. Þessar kræsingar þurfa ekki að einskorðast við gæsanir eða steggjanir og geta eflaust verið góður ísbrjótur í hvaða veislu sem er. Það er lítið mál að gera typpi úr uppáhalds brauðuppskriftinni sinni Það er til dæmis hægt að baka brauð sem hægt er að móta sem typpi, píku, brjóst og rass. Skemmtilega marglit píkukakaSkjáskot Þegar baka skal kynfæraköku þá skiptir bara máli að vera með góða uppskrift að grunnköku sem hægt er að skera til. Hægt er að hafa kökuna annað hvort með ljósum svampbotni, rauðum flauelsbotni (red velvet) eða hefðbundna skúffuköku. Bollakökur henta vel til að bjóða upp á allskyns skreytingar í sömu veislunni, t.d. brjóst og píkur eða typpi og sáðfrumur. Þá er engin skylda að þetta sé kaka því hægt er að gera vatnsdeigsbollur eða kleinuhringi. Píkukökur hafa sótt í sig veðrið nýverið og er hægt að fá sérstaka kökubók eingöngu tileinkaða píkukökum. Þessar kökur hljóta að lenda bráðum í bakaríium um allt land. Þá er það kremið. Hægt er að kaupa litað súkkulaði sem má bræða yfir vatnsbaði og húða kökuna eða hella yfir hana og svo má rúlla og leira úr sykurmassa til að skreyta kökuna.
Heilsa Lífið Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið