Skoðun

Áfram Kópavogsbúar!

Valgeir Skagfjörð skrifar
Þessi dægrin verður fólk áþeifanlega vart við að það standa fyrir dyrum bæjar og sveitastjórnarkosningar. Mörg ólík framboð stíga fram á völlinn reiðubúin að láta að sér kveða.

Loforðaflaumur gömlu flokkanna er samur og jafn eins og við er að búast en víða kveður við annan tón. Ákallið virðist vera um að ferskir vindar fái að blása um hreppa, sveitir og bæi landsins.

Sumpart vegna þess að það er brýn þörf á að fá nýtt fólk til starfa í pólitík almennt og sumpart vegna þess að hinir hefðbundnu stjórnmálaflokkar njóta æ minna trausts meðal almennings.

Það sést t.d . á þverrandi kosningaþáttöku og tónninn í fólkinu hljómar vonleysislega þegar það er spurt um skoðanir þess á mönnum og málefnum.

Til marks um þennan þorsta í eitthvað nýtt er til að taka hinn stóra kosningasigur BestaFlokssins í Reykjavík í síðustu kosningum þar sem meirihluti stærsta sveitarfélags landsins hafnaði gömlu flokkunum og þeim línum sem þeir hafa dansað eftir undanfarin kjörtímabil.

Í Kópavogi, næststærsta sveitarfélaginu munaði ekki nema 30 atkvæðum að NæstBestiFlokkurinn næði tveimur mönnum inn í bæjarstjórn, þá nýstofnað framboð.

Það dylst því engum að fólk er orðið langeygt eftir því fá nýtt fólk til áhrifa. Fólk sem er ekki tengt einhverjum hagsmunaklíkum sem lóna í kringum gömlu flokkanna. Venjulegt fólk sem stritar í sveita síns andlitis alla daga og skynjar hjartslátt lífsins í sínu nánasta umhverfi. Fólk sem veit hvernig það er að basla með börn og buru og skynjar það á buddunni sinni og öðru hvernig sveitarfélagið býr að því.

Fólk sem ekki er í stöðugu kappi að klífa upp metorðastigann innan síns flokks til þess að geta hlotið vegtyllur og slegið sjálft sig til riddara í tíma og ótíma fyrir að koma hlutum í verk sem eiga að vera sjálfsögð þjónusta við íbúana.

Nú er tími fyrir að láta auðmýkt og gagnsemi við náungann sitja í fyrirrúmi. Það hefur því miður ekki tíðkast meðal svokallaðra atvinnupólitíkusa að líta á sig sem þjóna samfélagsins sem taka þjónustuhlutverk sitt alvarlega og rækja það af sannri auðmýkt með virðingu fyrir því fólki sem lét svo lítið að gefa þeim atkvæði sitt; heldur hitt að líta á sig sem valdsmenn sem skirrast ekki við að láta hagsmuni almennings neðst á listann yfir það sem á að hafa forgang.

Næstbesti flokkurinn er ekki þannig framboð. Fólkið í næstbesta flokknum vill þjóna fólkinu og setja grunngildi mannlegs lífs í forgang. Næsbesti flokkurinn ætlar að vinna fyrir alla, ekki bara suma.

Á breiðstrætum auðmýktarinnar verða sjaldan árekstrar en í skúmaskotum hrokans eru menn sífell að rekast á.

Merkjum X við X í Kópavogi og treystum því að fólk sem er frítt við flokkshagsmuni geti unnið íbúunum gagn á næsta kjörtímabili.

Einn fyrir alla – allir fyrir einn.

Valgeir Skagfjöð, Kópavogsbúi.

Höfundur er leikari, tónlistarmaður og framhaldsskólakennari.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×